149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:25]
Horfa

Flm. (Þorsteinn Víglundsson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Það kemur mér ekkert á óvart að ákvæðið sé mjög þróað. Ég naut dyggrar aðstoðar fyrrum framsögumanns þessa máls, Pawels Bartoszeks. Ákvæðið er þaðan komið. Við unnum málið upp saman, eins og það lá fyrir frá síðasta kjörtímabili, í þennan búning. Ég verð að biðja hv. þingmann forláts á því að ég verði að leita sérstakra skýringa frá höfundinum í þeim efnum en ég skal verða mér úti um þau svör og koma til hv. þingmanns.