149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:26]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Eins og fram kom í máli hv. þingmanns sem mælti fyrir málinu sem við ræðum hafa svipuð mál verið lögð fram áður. Landlæknir hefur gefið umsögn og síðast þegar hann gaf umsögn, þ.e. síðast þegar málið fór fyrir nefnd, lét hann fylgja með langan lista yfir rannsóknir sem gerðar hafa verið víða um heim um hvað gerist þegar svipaðar aðstæður eru uppi og hv. þingmaður er að mæla með í frumvarpinu, líka þegar bara er bundið við sérverslanir eins og í því frumvarpi sem við ræðum. Ég geri ráð fyrir því að hv. þingmaður hafi kynnt sér þær rannsóknir mjög vel og vil spyrja hvort hann gefi lítið fyrir þær og umsagnir landlæknis í þeim efnum.