149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:35]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú má ég til með að hvetja þingmanninn til að lesa álit minni hlutans við þetta mál á síðasta kjörtímabili þar sem var bent á það sem kom fram hjá heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis um að eftirlit einkaaðila með aldri þeirra sem reyna að kaupa tóbak sé víti til varnaðar. Það skiptir ekki bara máli hversu margir sölustaðirnir eru heldur skiptir máli að eftirlit ÁTVR með aldri þeirra sem versla þar er miklu betra en eftirlit einkaaðila með tóbakssölu. Það er bara staðreynd, það er ekkert „ég tel“ þar.

Hvernig eigum við að tryggja að einkaaðilar sem ekki sjá til þess að unglingar komist ekki í tóbak muni sjá til þess að þeir komist ekki í áfengi? Þetta er nokkuð sem ekki var leyst á síðasta kjörtímabili og ég sé ekki tekið á í því frumvarpi sem hér liggur fyrir.

Það má náttúrlega velta fyrir sér hvaða vanda sé yfir höfuð verið að leysa. Þingmanninum verður tíðrætt um viðskiptafrelsi en mig langar að nálgast þetta mál frekar út frá lýðheilsunni. Ég er minnugur þess að síðast þegar þetta mál var til umfjöllunar (Forseti hringir.) vorum við svikin um það að málið fengi umsögn velferðarnefndar og umsögn fjárlaganefndar og við fengum ekki mat á þjóðhagslegum áhrifum (Forseti hringir.) frá Hagfræðistofnun eins og beðið var um. Þá langar mig að spyrja þingmanninn hvort honum lítist ekki vel á, í ljósi breytinganna sem hafa orðið á málinu, að í stað þess að senda það til allsherjar- og menntamálanefndar (Forseti hringir.) fari það til velferðarnefndar og verði tæklað sem það lýðheilsumál sem það er.

(Forseti (BN): Forseti vill biðja hv. þingmenn um að virða tímamörk.)