verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Ég segi það enn og aftur við þessa umræðu: Ég ber fulla virðingu fyrir skaðlegum heilsufarslegum áhrifum óhóflegrar neyslu áfengis. Um það er ekki deilt hér. Það er einfaldlega deilt um það með hvaða meðulum við spyrnum við fótum. Þar er ég einfaldlega að benda á að þessu, eins og á við um svo mörg önnur álitaefni um óhóflega neyslu matvara, tóbaks, lyfja og áfengis, verður best mætt með stóraukinni áherslu á fræðslu. Við leggjum einmitt til að framlög til forvarna og fræðslu um skaðleg áhrif óhóflegrar áfengisneyslu verði stóraukin. Þannig spornum við gegn þeim neikvæðu áhrifum sem sú sama óhóflega neysla hefur í för með sér.