verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég vil bregðast við öllum þessum heilsufarsvandræðum með aukinni fræðslu. Ég held að það væri mjög góður bragur að því að t.d. leyfisgjaldið, sem lagt er til að þessir aðilar sem selji áfengi í þessum sérvöruverslunum þurfi að greiða, verði látið renna í sérstakan fræðslusjóð um skaðsemi áfengis. Að auki held ég að í því að heimila auglýsingar um hversu skaðsamlegt áfengi er heilsu fólks felist ákveðin fræðsla líka. Ég held að það sé jákvætt skref. Ég er eiginlega alveg fullviss um það.
Það er hins vegar tvískinnungurinn í sambandi við áfengi sem ég held að sé verstur fyrir okkur. Það virðist vera hvort tveggja í senn, mikið umburðarlyndi fyrir áfengisneyslu en líka eitthvert stífelsi. Eins og stefnan er í dag virðist vera sem það þyki bara óskaplega eðlilegt að hver einasti 18 ára unglingur eða jafnvel 17 ára, eftir að unglingur byrjar í menntaskóla, byrji að drekka. Það er bara svona umræða á meðan það fjölgar mjög ungu fólki sem tekur ákvörðun um að drekka ekki neitt og byrja aldrei að drekka. Ég held að við getum miklu frekar hrósað okkur fyrir það en um leið líka notað fjármuni til að benda á skaðsemi áfengisneyslu.