149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[19:12]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég held að þetta frumvarp, eins og svo mörg sem við fjöllum um á Alþingi, snúist ekki um eitthvert stórt vandamál þannig séð, nema kannski auglýsingaþátturinn sem ég er svolítið upptekin af. Það er líka af því að ég hef horft á fjölmiðla dæmda fyrir að birta áfengisauglýsingar, íslenskan fjölmiðil sem er stillt upp við hliðina á útlenska fjölmiðlinum sem er nánast með áfengisauglýsingar á forsíðunni. Þess vegna held ég að það væri mjög snjallt að koma þeirri viðbót í gegn að áfengi sé skaðlegt. Þá erum við a.m.k. búin að tryggja að sú auglýsing fari um allt og ekki á kostnað ríkisins heldur á kostnað þess sem vill auglýsa. Mér finnst býsna snjallt að láta þann sem vill auglýsa áfenga drykkinn auglýsa um leið að hann sé skaðlegur heilsunni.

En vandamálið? Eins og ég hef margoft komið að getur sá sem hneigist til áfengis orðið sér úti um áfengi með sáralitlum vandkvæðum, nánast hvar sem er. Sá sem á við áfengisvanda að stríða á enn auðveldara með að verða sér úti um áfengi af því að hann hefur væntanlega hugsað um það frá því að hann vaknaði. Það hefur yfirleitt ekki verið vandamál hjá þeim sem eiga við áfengisvanda að stríða að geta ekki keypt sér áfengi á Íslandi. Það er ekki vandamálið í dag. Þetta (Forseti hringir.) snýst ekki um það. Þetta snýst um ákveðið prinsipp, um það hvort búðir ríkisins séu þær einu sem megi selja áfengi með tilheyrandi álagningu.