tilkynning.
Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
„Undirritaður gerir tillögu um, með vísan til 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að dagskrá næsta þingfundar verði svohljóðandi:
1. Óundirbúnar fyrirspurnir.
2. Sérstök umræða: Efnahagsleg staða íslenskra barna. Til félags- og barnamálaráðherra.
3. Lax- og silungsveiði (selveiðar), 645. mál, lagafrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. — 1. umræða.
4. Búvörulög (endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar og verðjöfnunargjöld), 646. mál, lagafrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. — 1. umræða.
5. Ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, 639. mál, lagafrumvarp samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. — 1. umræða.
6. Siglingavernd (dagsektir, laumufarþegar o.fl.), 642. mál, lagafrumvarp samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. — 1. umræða.
7. Úrskurðarnefndir á sviði neytendamála, 649. mál, lagafrumvarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. — 1. umræða.
Undirritaður óskar eftir því að tillaga þessi verði í samræmi við tilvitnaða grein þingskapa borin upp til atkvæða á Alþingi.“
Undir þetta bréf ritar Jón Þór Ólafsson.
Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.