149. löggjafarþing — 77. fundur,  7. mars 2019.

fiskeldi.

647. mál
[12:15]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er sjálfsagt að læra af mistökum annarra þjóða. Ég held að við samningu þessa frumvarps, alveg frá árinu 2016, hafi verið reynt að líta til þeirra, t.d. varðandi það að við getum sett upp eftirlitskröfur og umgengniskröfur á þeim grunni að styrkja möguleika okkar til að koma í veg fyrir óæskileg slys af eldinu varðandi náttúruna.

Litið hefur verið til nágrannaþjóðanna varðandi gjaldtökuna. Það mun endurspeglast í því frumvarpi sem ég kem vonandi fram með innan tíðar varðandi gjaldtökuna. Það var í samráðsgátt á sama tíma og þetta frumvarp.

Ég minni á að þegar við berum saman gjaldtöku hér við t.d. Noreg eru uppboðsgjöldin tiltölulega nýtilkomin í Noregi á hluta leyfanna. Hér á Íslandi hefur leyfum fyrir nokkra tugi (Forseti hringir.) þúsunda tonna verið úthlutað á grundvelli gildandi laga (Forseti hringir.) sem gera ekki ráð fyrir gjaldtöku af leyfum. Við erum með frumvarpinu að reyna að þreifa okkur áfram (Forseti hringir.) í einhverja átt að gjaldtöku (Forseti hringir.) fyrir það að fyrirtæki fái afnot af sameiginlegum sjó.

(Forseti (JÞÓ): Forseti minnir ræðumenn á að halda tíma.)