149. löggjafarþing — 77. fundur,  7. mars 2019.

fiskeldi.

647. mál
[12:18]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrst varðandi áhættumat erfðablöndunar. Nei, ég þekki ekki hvort það eru annars staðar í lögum eða störfum bindandi tillögur fyrir ráðherra. Í þessu tilviki, eftir yfirferð athugasemda, eftir umræðu um málið, þykir mér það fullkomlega eðlilegt að þessi tillaga sé sett fram í frumvarpinu af þeirri ástæðu að ráðuneytið hefur enga þekkingu eða neitt því um líkt til að geta veitt Hafrannsóknastofnun ráðgjöf við það vísindalega starf sem af þessu leiðir.

Að auki er líka sú staðreynd uppi að þetta er nákvæm tala, þ.e. fjöldi þeirra tonna sem leyft er að ala í sjó. Þetta er ekki sambærilegt við t.d. mat okkar á fiskstofnum í hafinu þar sem við vitum í raun miklu minna. Við erum með burðarþol og áhættumat upp á nánast, (Forseti hringir.) ég segi ekki kíló af fiski, en það er ákveðið af stjórnvöldum hversu mikið fari þarna út með einhverri heildarlöggjöf. (Forseti hringir.) — Ég skal koma að vöktuninni og lífrænu aðlöguninni í síðara andsvari.