fiskeldi.
Virðulegi forseti. Já, nefndin fer örugglega yfir laxastofninn og skilgreiningarnar á honum. Það er hið besta mál.
Varðandi áhættumatið er ég eins og hv. þingmaður áhugamaður um það. Í mínum huga hefur það t.d. ekki verið æskileg staða að það sé enginn lagagrunnur fyrir notkun þessa tækis því að það er farið að smita út í fleiri stofnanir sem vinna með málin. Þess vegna tel ég að sá samráðsvettvangur sem þarna er settur upp sé mjög nauðsynlegur til að menn skýri betur og séu í rauninni á sama stað þegar verið er að ræða með hvaða hætti því tæki er beitt, hverjar forsendurnar eru sem lagðar eru til grundvallar og fleiri þætti þannig að allir séu á sama stað þegar verið að ræða innihaldið í því.
Margar spurningar koma upp í sambandi við notkunina á tækinu, það skal ég játa. Það er eðlilegt meðan verið er að byggja það upp og koma því á þann stað að við höfum sem flest sama (Forseti hringir.) skilning á því hvað felist í því þó að við þurfum ekki endilega öll að vera sammála um hvernig því er beitt.