149. löggjafarþing — 77. fundur,  7. mars 2019.

fiskeldi.

647. mál
[12:28]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef ekki haft neitt sérstakt samráð við einstaka ráðherra, hvort heldur það er umhverfisráðherra, forsætisráðherra eða fjármálaráðherra. Þetta er á málasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og er byggt á (Gripið fram í.) stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Umhverfisráðuneytið átti á fyrri stigum málsins fulltrúa í þeirri samstarfsnefnd sem um málið fjallaði. Þegar ég lagði fram málið í fyrra sinn áttum við viðræður við umhverfisráðuneytið og umhverfisráðherra og gerðum ákveðnar breytingar á frumvarpinu við það. Það liggur því alveg fyrir.

Það eru skiptar skoðanir um fiskeldi og áformin um það í öllum flokkum. Ég veit til þess að einstaklingar í einstökum þingflokkum hafa ekki allir sömu skoðun á því með hvaða hætti eigi að ganga að þessu. (Forseti hringir.) Það er ósköp eðlilegt í mínum huga þegar við erum að taka, að minni hyggju, varfærin skref við að byggja upp nýja atvinnugrein sem kallar á að við (Forseti hringir.) notum og nýtum náttúruna með öðrum hætti en við höfum gert.