149. löggjafarþing — 78. fundur,  11. mars 2019.

viðvera ráðherra við umræður um fiskeldi.

[15:06]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég kem reyndar að því í ræðu minni á eftir en vil taka fram að ekkert samráð var haft við minni hluta nefndarinnar um að taka málið á dagskrá á fimmtudaginn. Ef ég hefði verið hér hefði ég að sjálfsögðu komið fram með þessar athugasemdir í tíma.

Þetta er fyrsta tækifærið sem ég hef til að beina þessu til hæstv. forseta þannig að ég vona að hann virði það við mig að hafa þess vegna ekki komið fyrr fram með þessar athugasemdir. Ég virði það líka að hæstv. umhverfisráðherra er í útlöndum að sinna embættiserindum og mun því ekki gera veður út af því. Ég mun hins vegar óska eftir því að hann verði kallaður á fund nefndarinnar til þess að svara þeim fyrirspurnum sem ég hef til hans varðandi málið sjálft.