fiskeldi.
Herra forseti. Við fjöllum hér um stórt mál sem hefur verið til umræðu ansi lengi, frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi. Var það rætt líka á síðasta þingi en talin ástæða til að skoða það betur og fara í gagngera skoðun á því, miðað við gagnrýni sem hafði komið á það og hvort hægt væri að mæta ýmsum málefnalegum sjónarmiðum. Málið hefur farið í samráðsvettvang aftur og kemur nú fram með ýmsum breytingum sem ég tel að séu til bóta og séu góðar.
Því miður hefur þetta mál farið í átakaferil, a.m.k. hjá ákveðnum aðilum. Ég tel ekki gott að það skuli hafa þurft að gera það. En það er kannski ekki óeðlilegt miðað við það að þetta er nýtt fyrir okkur Íslendinga, að fara út í umfangsmikla atvinnustarfsemi í sjókvíaeldi. Ýmsar hættur geta verið þar varðandi okkar villtu laxastofna og umhverfi yfir höfuð, svo sem burðarþol fjarða og ýmsa sjúkdóma sem geta fylgt sjókvíaeldi.
Þegar við fengum málið til umfjöllunar í atvinnuveganefnd á síðasta ári taldi ég rétt að við reyndum öll að kynna okkur þessi mál eftir því sem við gætum best. Við kynntum okkur sjókvíaeldi á sunnanverðum Vestfjörðum í fyrra og reyndist vera mjög upplýsandi og áhugavert að sjá hvað fyrirtæki þar eru búin að gera. Síðan höfðum við tök á því að fara í síðustu viku til Bergen í Noregi og kynna okkur sjókvíaeldi Norðmanna og það sem menn hafa verið að gera þar í gegnum tíðina.
Norðmenn eru engir nýgræðingur í þessum málum. Þeir hafa verið með sjókvíaeldi allt frá 1970. Þeir hafa lent í ýmsum áföllum því tengdu, bæði varðandi umhverfismál og villta laxastofna þeirra. Það er fjöldinn allur af laxveiðiám upp um allar strendur Noregs og gífurlegur fjöldi og mismunandi tegundir af villtum laxi eftir því hvaða á á í hlut. Norðmenn hafa glímt við þessi mál og hafa sömu áhyggjur og margir hér á landi. Ég tel að við getum lært mikið af reynslu þeirra og þurfum ekki að falla í sömu gryfju með ýmsa þætti og þeir kannski gerðu á sínum tíma. Þeir eru komnir mjög langt í öllu eftirliti og umhverfiskröfum í sjókvíaeldi, tæknibúnaði öllum og umgjörð í kringum fiskeldið.
Í ferð okkar hittum við fulltrúa frá þarlendri hafrannsóknastofnun og fulltrúa fiskistofunnar þar og fjölda vísindamanna hjá NORCE þar sem unnið er að rannsóknum á fiskeldi og áhrifum þess, bæði samfélagslegum og umhverfislegum. Við áttum kost á að heimsækja fjölskyldufyrirtæki í fiskeldi til 50 ára sem var þarna fyrir utan Bergen, Blom. Þar skoðuðum við nýjustu tækni og búnað í eldinu. Þar er ferðaþjónustu blandað saman við sjókvíaeldi og ferðamönnum boðið að kynna sér eldið og skoða safn sem tengt er því. Við hittum líka fulltrúa þrennra umhverfissamtaka í Noregi sem við áttum gott samtal við. Þessir aðilar hafa gagnrýnt fiskeldi þar frá ýmsum hliðum og margir hverjir vilja helst að fiskeldi fari að stórum hluta upp á land. Það er kannski ekki mikill möguleiki á því vegna þess að landrými er ekki til staðar þar sem fiskeldi er í dag og er talið vera miklu óhagkvæmara. Svo hafa menn talað fyrir lokuðum kvíum og geldfiski. Allt er þetta í þróun en hefur ekki þótt ganga nægilega vel til þess að Norðmenn hafi einhent sér í þessa þætti, þótt þeir séu áfram til skoðunar og verið að kanna möguleika á þeim.
Það sem mér fannst standa upp úr í þessari ferð er hve mikil og breið samstaða er um að flétta saman og byggja á svo breiðum grunni margra aðila áður en áhættumat er gefið út af hafrannsóknastofnun. Það er tekið tillit til mótvægisaðgerða eins og er rétt verið að byrja að gera á Íslandi. Það eru mótvægisaðgerðir með myndavélum, vöktun og horft er til þess að sleppa stærri seiðum. Þar eru kafarar sendir til að fjarlægja laxa úr ám ef sést á myndavélum og í vöktun að einhver eldislax hefur sloppið. Svæðin öll eru merkt eftir áhættu og þoli, svokölluðum umferðarljósum, hvort þau séu græn svæði eða rauð þar sem ekki er burðarþol fyrir meira eldi.
Allt þetta tel ég til fyrirmyndar og við megum læra mikið af. Ég tel að með breytingum í þessu frumvarpi, t.d. á skilgreiningu á áhættumati í erfðablöndun, sé tekið tillit til mótvægisaðgerða. Hafrannsóknastofnun hefur þá lagalega tækifæri til þess að horfa til mótvægisaðgerða sem væru til bóta, meta áhættumat á viðkomandi svæðum. Ég tel mjög brýnt að sú breyting komi sem fyrst til framkvæmda svo hægt sé að gera það sem best og stuðla að því að við tökum ekki áhættu varðandi erfðablöndun. Ef einhverjar slysasleppingar verði sé hægt að bregðast við strax og skjótt. Það tel ég mjög til framfara í þessu frumvarpi. Einnig er í frumvarpinu talað um að tilteknar landeldisstöðvar skuli starfrækja gæðakerfi sem hluta af innra eftirliti, sem var ekki í fyrra frumvarpi. Ég tel það líka mjög til bóta og horfi til þess í umfjöllun nefndarinnar að kannski þurfum við að lyfta umhverfisvottun í matvælaiðnaði, gera ýmiss konar umhverfisvottun miklu hærra undir höfði og að þeim fyrirtækjum sem hafa fengið umhverfisvottanir með alþjóðlegum stöðlum fyrir sína framleiðslu sé líka ívilnað með einhverjum hætti, alveg jafnt og það er ákveðin ívilnun varðandi þær tilraunir sem horft er til með ófrjóa laxinn.
Ef ég horfi aftur til þess sem er verið að gera úti í Noregi með tilliti til þess sem hefur verið gagnrýnt hér, að ráðherra hafi ekki endanlega ákvörðun í sinni hendi varðandi áhættumatið heldur sé það Hafrannsóknastofnun sem gefi út lögbundið bindandi áhættumat að lokum þó að ráðherra hafi vissulega möguleika á að samþykkja það ekki og þá gildi fyrra áhættumat, er það er ekki þannig í Noregi og segja fulltrúar hafrannsóknastofnunar að þeir séu ekki pólitískir aðilar og eigi ekki að bera þessa stjórnsýslulegu ábyrgð, það sé stjórnvalda að gera það. Kannski þurfum við í umræðunni á Íslandi þar sem verið er að ná utan um þetta heildstætt, gagnvart þeim aðilum sem hafa áhyggjur af erfðablöndun og umhverfismálum, að stíga skrefin eitt og eitt í einu, ná breiðari sátt um framkvæmd laganna og sjá hvernig til tekst hjá okkur. Þar sem við erum búin að læra ýmislegt af Færeyingum og Norðmönnum myndi ég telja að þessi samráðsvettvangur gæti mætt þessum sjónarmiðum um að Hafrannsóknastofnun geti beitt mótvægisaðgerðum og tekið tillit til þeirra í sínu áhættumati. Það er auðvitað mjög ánægjulegt.
Ég vona að okkur takist að vinna þetta mál vel. Ég legg áherslu á að kalla til sem flesta aðila sem hafa skoðanir á því, kalla fram sem bestar og mestar upplýsingar svo við getum rætt þetta af yfirvegun og með staðreyndirnar að leiðarljósi. Við þurfum líka að hafa breidd í því sem vísindamenn hafa um þetta að segja, að við köllum til vísindamenn úr ólíkum áttum, ekki bara vísindamenn innan okkar ágætu stofnunar, Hafrannsóknastofnunar, heldur líka úr háskólasamfélaginu. Það hafa auðvitað stigið fram á sviðið vísindamenn, sem hafa ekki verið nógu sáttir við áhættumatið eins og það lá fyrir í frumvarpinu sem við fjölluðum um síðast og er byggt á í dag, sem telja að það þurfi að skoða miklu betur og að ekki hafi gefist nægur tími til að byggja það upp svo hægt sé að segja að það sé endanlegt. Enda er með þessu frumvarpi líka verið að segja að áhættumatið þurfi að vera lifandi. Það þarf að vera svigrúm til þess að taka til greina ýmsar tækniframfarir og þróun í þessum málum sem eru til staðar og unnið er með hjá frændþjóðum okkar, Norðmönnum og Færeyingum.
Ég veit að fiskeldi verður mikil lyftistöng fyrir mörg byggðarlög. Þetta kemur til með að hafa mikil og jákvæð áhrif á efnahag landsins. Það hefur kannski oft gleymst í þessari umræðu. Sjókvíaeldi hefur lyft byggðum Noregs á landsbyggðinni, styrkt þær efnahagslega gífurlega mikið. Þar renna 80–85%, minnir mig, af leyfisgjöldum til byggðanna. Það hefur skipt sveitarfélögin gífurlega miklu máli í allri uppbyggingu.
Við erum að stíga þessi fyrstu skref til að hafa gott og heilbrigt regluverk í kringum þessa grein, regluverk sem byggir á umhverfisþáttum, efnahagslegum þáttum og samfélagslegum þáttum. Við þurfum að halda áfram að þróa þetta módel, að sveitarfélögin fái líka sem bestar tekjur af sjókvíaeldi sem og þjóðin öll. Horft sé til minni aðila í greininni, að þeir hafi möguleika og að þeir sem hafa verið frumkvöðlar á sínu svæði hafi möguleika í samkeppni við hina stóru. Mér finnst það vera eitt sem við þurfum að skoða í þessu frumvarpi núna, að gefa þessum minni aðilum möguleika á að vera með minni fjölskyldufyrirtæki, samanber það sem við skoðuðum í Bergen á dögunum.
Í frumvarpinu er búið að taka á ýmsum þáttum sem er mjög gott að ná fram. Síðan munum við leggja okkur fram í atvinnuveganefnd við að vinna þetta mál sem best og mest í sátt við alla hagsmunaaðila og auðvitað umhverfið og samfélögin á þessum svæðum.