149. löggjafarþing — 78. fundur,  11. mars 2019.

fiskeldi.

647. mál
[18:04]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hér er um verulegar breytingar að ræða á tilhögun stjórnsýslu- og eftirlitsþáttar og m.a. þess sem hv. þingmaður nefnir hér, á innra eftirliti, kannski helst þar, en einnig á fyrirkomulagi á ytra eftirliti, ef það má kalla svo. Kemur þar til kasta samráðsnefndar, sem skipuð er af hæstv. ráðherra, sem ætlað er að vera stjórnvöldum almennt til ráðgjafar og styrkja þannig hinn vísindalega grundvöll og áhættumatið og, vil ég meina, áframhaldandi ákvarðanir um uppbyggingu fiskeldis, ekki síst gagnvart þeim umhverfissjónarmiðum sem undir eru, svo sem varðandi erfðablöndun vegna sjúkdóma, sníkjudýr, laxalús og önnur umhverfisáhrif, til að mynda í fjörðunum.

Jafnframt er verið að leggja til aukið fjármagn beinlínis til að efla stjórnsýsluna og eftirlitsþáttinn.

Það sem ég sé jákvætt við innra eftirlit, að fyrirtækin sjálf afli upplýsinga og komi þeim á framfæri eins og ætlast er til, er að það muni auka gagnsæið og möguleikana á því að vera nær í tíma gagnvart því að uppfæra áhættumatið eins og lagt er upp með í frumvarpinu.

Þetta er það sem kemur helst upp í huga mér sem svar við þessari spurningu, hv. þingmaður.