fiskeldi.
Herra forseti. Þetta mál á sér mjög margar hliðar. Ég ætla bara rétt að nefna eitt atriði, þó að það sé orðið svolítið áliðið, og það er birting upplýsinga. Þar sem hv. þingmaður, og ég þakka fyrir hans ágætu ræðu, þekkir mjög vel til í fluginu og gerir sér vel grein fyrir því hvað það er mikilvægt að það séu glöggar upplýsingar um starfsemina á þeim vettvangi vil ég vekja athygli á nýrri grein, c-lið 19. gr., um birtingu upplýsinga. Þar er Matvælastofnun gert skylt að greina opinberlega frá niðurstöðum eftirlits og ákvörðunum sem fela í sér veigamikla þætti eða veigamiklar íþyngjandi ákvarðanir fyrir fyrirtækin. Þetta er mjög gott. En í b-lið 19. gr. segir að heimilt sé að birta opinberlega upplýsingar úr eftirliti Matvælastofnunar og upplýsingar úr rekstrarleyfum og framleiðsluskýrslum einstakra rekstrarleyfishafa.
Úr því að það er á annað borð orðað þarna að þetta sé heimilt, hvers vegna er það ekki gert skylt? Ég vil gjarnan inna hv. þingmann eftir afstöðu hans til þessa atriðis vegna þess að síðan segir í framhaldinu að ráðherra setji ákvæði í reglugerð um framsetningu og inntak þessarar birtingar. Ég skil það vel að framsetningin sé útskýrð þarna, til að mynda að hún sé rafræn og á hvaða tímamarki þessar upplýsingar séu birtar. En ég átta mig ekki á því hvað átt er við með að ráðherra eigi að hafa um það að segja í reglugerð hvert sé inntak þessara birtinga.
Ég vil leyfa mér að inna hv. þingmann eftir viðhorfum hans almennt til upplýsingagjafar og til þessarar greinar, sem ég tel afar mikilvæga. Ég tel reyndar að það sé með myndarlegum hætti tekið á einum þætti þessa í fyrrgreindum c-lið 19. gr.