viðbrögð stjórnvalda við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu. Munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Ég fagna yfirlýsingu hæstv. forsætisráðherra um að hún hyggist vinna þetta mál í samvinnu við alla flokka. Samfylkingin er tilbúin til að koma að þeirri vinnu enda verði hún byggð á vandvirkni og virðingu fyrir Mannréttindadómstólnum.
Það er ekki úr vegi að ræða aðeins, í ljósi þess hvernig haldið hefur verið á þessu máli á undanförnum dögum, um pólitískan stöðugleika sem formenn stjórnarflokkanna hafa gjarnan talið sig vera búna að koma á í landinu og spyrja sig hvort stöðugleikinn snúist aðeins um það að ríkisstjórn lafi í full fjögur ár eða hvort eitthvað annað og meira þurfi að koma til. Getur verið að hann þurfi líka að snúast um meiri vandvirkni og pólitíska ákvarðanatöku og að lokum að því að mikilvæg stoð réttarríkis sé traust og standi á góðum grunni?
Það þarf raunar ekki að horfa lengi yfir sviðið til að sjá að hér er engum pólitískum stöðugleika til að dreifa. Þvert á móti einkennist stjórnarfarið af fumi og skammsýni. Ríkisstjórnin dró það í rúmt ár að boða húsnæðistillögur þrátt fyrir að það væri ljóst að slíkt þyrfti að koma til ef ná ætti samkomulagi á vinnumarkaði. Óbreyttir stjórnarþingmenn tóku völdin af samgönguráðherra í samgönguáætlun, boðuðu nýjar hugmyndir sem þeir skildu ekki sjálfir og varla mun boðuð lækkun ríkisstjórnarinnar á framlögum til sveitarfélaganna koma hér á neinum pólitískum stöðugleika.
Nú stöndum við hins vegar frammi fyrir því að við þurfum að greiða úr þeirri flækju á heilu dómstigi sem sköpuð var af fyrrverandi dómsmálaráðherra sem böðlaðist áfram og skeytti engu um ráðleggingar frá fjölda sérfræðinga, m.a. sinna eigin í ráðuneytinu. Hún tók heldur ekki boði stjórnarandstöðunnar um að taka sér lengri tíma til að rökstyðja mál sitt og vinna það sómasamlega. Ríkisstjórnin virðist hafa verið algerlega óviðbúin dómnum þrátt fyrir að hæstv. forsætisráðherra hafi sagt áðan að búast hefði mátt við ýmsum niðurstöðum. Fyrir vikið einkennist staðan nú af fullkominni óvissu og jafnvel upplausn. Í þessu stjórnarsamstarfi virðist engin tilraun gerð til þess að horfa lengra fram í tímann en nef ráðherranna nær. Nú eru meira að segja raddir uppi hjá stjórnvöldum um að teygja á þessari óvissu í eitt til eitt og hálft ár og áfrýja dómnum til yfirdeildar. Það er reyndar algerlega óvíst hvort hún muni taka við málinu. Það er rétt að minna á það að íslenska ríkið hefur aldrei áfrýjað þegar það hefur tapað dómum fyrir Mannréttindadómstólnum.
Hæstv. fjármálaráðherra og einnig fyrrverandi dómsmálaráðherra hafa seilst ótrúlega og háskalega langt, finnst mér, í að grafa undan trúverðugleika dómstólsins og jafnvel ýjað að því að hægt sé að segja sig frá honum. Þannig daðra þau við viðbrögð ríkja sem hafa verið að veikja réttarkerfið markvisst með inngripi í dómstóla, svo sem Póllands, Tyrklands og jafnvel Ungverjalands. Þau hafa talað um að atburðir í álfunni, væntanlega í þessum ríkjum, eigi þátt í því að dómurinn féll á þennan veg. Það má hugsanlega álíta að svo sé. Það getur vel verið að Mannréttindadómstóllinn hafi einmitt ákveðið að taka mál dómstólanna sérstaklega föstum tökum og verja dómstóla Evrópu. Ég held að það sé nauðsynlegt og því er reyndar fagnað víða um Evrópu.
Vonandi verður þessi dómur til þess að nú heyri sögunni til að ráðherrar freistist til að skipa í dómstóla af geðþótta fólk sem er ekki hæfast úr röðum umsækjenda, vitandi að það getur kallað yfir skattborgarana skaðabætur en viðkomandi dómarar sitja sem fastast. Nokkur mál af þessum toga hafa komið upp á síðustu árum, sem við þekkjum öll. Ég efast ekki augnablik um hæfi þeirra sem sóttu um að verða skipaðir í nýjan Landsrétt en það verður fróðlegt að sjá hver staða hinna fjögurra verður sem málið nær væntanlega til. Kannski nást við þau einhverjir samningar eða þau verða á launum út starfsævina, en það er víst að klúður fyrrverandi ráðherra á eftir að verða okkur býsna dýrt. Líklega mun kostnaðurinn hlaupa á hundruðum milljóna króna. Það er vissulega dýrt að halda úti óháðum og góðum dómstólum og dómskerfi og er fyllilega fjárfestingarinnar virði en hér er hins vegar um að ræða fjáraustur sem hefði verið hægt að spara sér og nota í betri hluti.
Herra forseti. Mannréttindadómstóllinn hefur staðið fyrir gríðarlegum réttarbótum um alla álfuna, líka hér á Íslandi. Frægast er mál Jóns Kristinssonar en hans mál hjá dómstólnum gegn íslenska ríkinu leiddi til þess að loks var slitin í sundur meðferð ákæruvalds og dómsvalds. Það tók nokkur ár að breyta okkar kerfi til að uppfylla þau skilyrði sem dómstóllinn setti og kostaði okkur mjög mikla fjármuni. En það var góð og brýn fjárfesting og sjálfsagt efast ekki nokkur maður í dag um réttmæti þess. Þetta breytti öllu réttarkerfinu og leiddi til stofnunar héraðsdómstóla. Borgararnir fengu betra og öruggara dómskerfi. Við höfum breytt ótal hlutum hjá okkur vegna dóma þessa dómstóls í málum sem við höfum ekki einu sinni átt aðild að og það endurspeglast líklega skýrast í lögum um meðferð sakamála og dómum á því sviði.
Herra forseti. Það er a.m.k. gott að kominn er nýr ráðherra sem getur rakið upp klúðrið sem fyrrverandi ráðherra prjónaði. Ég óska henni sannarlega velfarnaðar í því starfi. Ég ítreka að Samfylkingin mun koma sáttfús að vinnu við það. Ég vil þó minna ráðherra á að dómstólar eru sjálfstæðir og ein af þremur stoðum ríkisvaldsins og þess vegna þarf að hlusta mjög alvarlega á orð formanns dómstólasýslunnar sem segir of fljótt að ákveða að skjóta dómnum til yfirdeildar og halda öllu í óvissu. Þá ráðlegg ég ráðherra, eins og hæstv. forsætisráðherra reyndar boðaði að gera, að kalla til færustu sérfræðinga á sviði lögfræði og hlýða ráðum þeirra að þessu sinni. Það er mikilvægt að við komum þessu nýja og mikilvæga millidómstigi í lag þannig að það sé yfir vafa hafið að dómstólar hér á landi séu sjálfstæðir og óvilhallir og njóti þess trausts sem er órjúfanlegur hluti af lýðræðislegu réttarríki.
Þó að það blasi við að hæstv. forsætisráðherra hafi á endanum rekið hnefann í borðið og knúið fram afsögn ráðherra verður ekki hjá því komist að gagnrýna hana harðlega fyrir að hafa gengist inn á það í upphafi að sama ráðherra og kom okkur í þessa erfiðu klípu væri treyst fyrir ráðuneytinu aftur.
Herra forseti. Nú þurfum við að taka til. Við þurfum að vanda okkur. Við þurfum að standa öll saman um það og passa upp á að að þessu sinni verði ekki farið út í leiðangur sem mun framlengja og auka óvissuna í réttarkerfinu og grafa undan því.