viðbrögð stjórnvalda við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu. Munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Ég vildi í upphafi, eins og aðrir ræðumenn, þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir þá greinargerð sem hún hóf þessa umræðu á í dag. Almennt talað má segja að umræðan í dag hafi verið fremur uppbyggileg og vísbending um að flestir í þessu húsi séu tilbúnir til að setjast niður og ræða málin á nokkuð málefnalegum forsendum. Frá því eru ákveðnar undantekningar en vonandi bráir af þeim hv. þingmönnum sem hafa haft mestan æsing í þessari umræðu í dag þannig að það verði unnt að ræða þessi mál á uppbyggilegum forsendum með það fyrir augum að greiða úr þeim málum, sem vissulega stendur upp á okkur að greiða úr, og að menn geti með þeim hætti aðeins sett til hliðar, a.m.k. í bili, flokkspólitískar væringar. Með þessu er ég ekki að gera kröfu um að allir séu sammála um alla hluti, hvorki niðurstöður Mannréttindadómstólsins né viðbrögð stjórnvalda við þeim. En við stöndum hins vegar frammi fyrir sameiginlegu viðfangsefni sem við þurfum að leysa úr, viðfangsefnum ef svo má segja, fleiri en einu. Ég held að það sé okkur hollast að gera það á lausnamiðaðan hátt og með það í huga að leiða mál farsællega til lykta frekar en að gera út um einhver pólitísk álitamál með þeim hætti sem hefur örlað á hjá einstökum ræðumönnum hér í dag. En ég tek þó fram að í meginatriðum er umræðan búin að vera á lausnamiðuðum forsendum og uppbyggileg.
Það fyrsta sem við þurfum auðvitað að velta fyrir okkur er staða dómstóla eins og hún er núna. Formlega séð eru málin skýr að því leyti að niðurstöður Mannréttindadómstólsins hafa ekki bein réttaráhrif hér á landi þannig að staða Landsréttar og landsréttardómara er sú sama eftir dóminn og fyrir hann. Það er býsna skýrt og hlýtur að hafa áhrif á það hvernig við meðhöndlum málið. Með þessu er ég ekki að segja að niðurstöður Mannréttindadómstólsins hafi ekki áhrif hér á landi. Það er augljóst að við erum bundin af mannréttindasáttmálanum og úrlausnum að þjóðarétti og þurfum að bregðast við með einhverjum hætti. En ég held að við verðum að anda með nefinu þegar við fjöllum um stöðu dómaranna og dómstólsins í ljósi niðurstöðu Mannréttindadómstólsins og horfa til hinna efnislegu þátta málsins. Og ég held að það þjóni heldur ekki tilgangi að reyna að gera meira en efni standa til úr meintu uppnámi, því að mál hlaðist upp og þess háttar. Ég er ekki viss um að það standist allt skoðun sem sagt hefur verið um það efni, a.m.k. hvað málafjölda og þess háttar varðar.
En vissulega stendur upp á okkur að finna lausnir að því leyti hvernig fyrirkomulagi Landsréttar verður háttað. Það þarf að skoða stöðu þessara dómara allra og að hvaða leyti þarf að bregðast við. Við þurfum að velta fyrir okkur hver greinarmunurinn er á stöðu fjögurra dómara og 11 í því sambandi. Það er ástæða til að rifja upp, eins og fleiri en einn hafa gert í þessari umræðu, að þegar greidd voru atkvæði um dómaraefni í þinginu var sami háttur hafður á varðandi alla 15. Telji menn þann annmarka alvarlegan, að atkvæðagreiðslan hafi farið fram með þeim hætti sem hér gerðist, á það jafnt við um alla 15. Aðdragandi málsins var auðvitað öðruvísi hvað varðar fjóra og 11, en sá þáttur sem sneri að málsmeðferð í þinginu á jafnt við um þá alla. Þetta er eitt af því sem við þurfum að hafa í huga í þessari umræðu.
Annað atriði sem við þurfum auðvitað að velta fyrir okkur og ég hef nokkuð ákveðnar meiningar um er að mér finnst eðlilegt að það sé látið á það reyna hvort yfirdeild dómstólsins sé tilbúin að taka þetta mál til endurmats. Við tölum ekki um áfrýjun í þessu sambandi, skilst mér, samkvæmt þeim sem eru best að sér í hugtakanotkun fyrir Mannréttindadómstólnum, en hins vegar er fyrir hendi réttur til að óska eftir mati þessarar yfirdeildar, Grand Chamber Panel, á dómum. Mér finnst eðlilegt að það sé skoðað af fullri alvöru að skjóta máli þangað. Það er síðan ákvörðun þeirrar yfirdeildar sjálfrar hvort hún tekur mál til meðferðar og auðvitað vitum við ekki fyrir fram hver úrslit verða í því eða hver efnisleg niðurstaða yrði ef málið yrði tekið þar til efnislegrar niðurstöðu. En mín fyrstu viðbrögð eru þau að það væri óeðlilegt að láta ekki á það reyna hvort þessi deild er tilbúin að taka þetta til einhvers konar endurmats eða yfirmats eða hvað við köllum þá málsmeðferð sem þar myndi fara fram. Ég get hins vegar tekið undir það með hæstv. forsætisráðherra að það þarf auðvitað að fara fram mat á öllum þáttum og hliðum málsins áður en ákvörðun um slíkt er tekin. En mér finnst, horfandi á þetta án þess að hafa haft tök á að leggjast í grundvallaratriðum yfir þetta nema bara eins og hver annar þingmaður hér, að það væri eðlilegt að leita eftir heimild til að skjóta málinu þangað.
Síðan skulum við ekki gleyma því, og í því sambandi er ástæða til að taka með vissum hætti undir orð síðasta ræðumanns, hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar, að við þurfum að huga að því í framhaldinu hvernig við viljum haga þessum málum til frambúðar í þinginu, hvar valdið á að liggja og ábyrgðin. Núgildandi ákvæði dómstólalaga bjóða upp á ákveðnar hættur eins og kannski reynslan sýnir. Við þurfum að vega það og meta og ræða hreinskilnislega hvort við teljum að dómnefnd eða hæfisnefnd eigi að hafa í raun og veru hið endanlega ákvörðunarvald í sambandi við val dómara, hvort aðkoma dómsmálaráðherra á eingöngu að vera (Forseti hringir.) formleg en ekki efnisleg og síðan að lokum hver aðkoma þingsins á að vera, hvert hlutverk þingsins á að vera ef þingið (Forseti hringir.) á að greiða atkvæði um dómaraefni. Á það að vera að samþykkja (Forseti hringir.) eða synja eða á það að fela í sér einhvers konar stjórnsýslulegt kæruferli (Forseti hringir.) eða endurmat á stjórnsýslulegum þáttum? Þetta eru spurningar sem við þurfum að svara í framhaldinu. (Forseti hringir.) En hin viðfangsefnin sem ég nefni eru hugsanlega brýnni í tíma.
Herra forseti. Ég biðst afsökunar á því að hafa farið fram yfir tímann.
(Forseti (BN): Það var viðeigandi.)