149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

staða á vinnumarkaði og jöfnunarsjóður.

[13:33]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Nú stefnir í hörð átök á vinnumarkaði, kannski þau hörðustu í áratugi, og ber mikið á milli viðsemjenda. Vissulega beinast mörg spjót að ríkisstjórninni, enda hefur hún tæki í höndunum til að brúa bilið sem þarf og auka lífskjör og velferð allra í landinu. Samkvæmt könnun ASÍ vilja 83% Íslendinga að fólk með heildartekjur undir 500.000 kr. á mánuði fái meiri skattalækkun en aðrir. Þetta er þvert á þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur boðað sem skilar hótelstjóra sömu krónutölu og hótelþernu.

Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Koma til greina frekari skattbreytingar í þá átt, þ.e. lækkun skatta á lægstu og meðallaunin?

Kjör fatlaðs langveiks fólks hefur því miður ekki borið jafn hátt í umræðunni en þau hafa hins vegar versnað stöðugt síðustu 20 ár. Nú heyrist að fyrirhugað sé að skera niður framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um 3,3 milljarða kr. Hlutverk jöfnunarsjóðsins er annars vegar að fjármagna hluta þjónustu við fatlað fólk og hins vegar nauðsynlega þjónustu sveitarfélaga sem mörg búa við erfiðan fjárhag. Afleiðingin gæti orðið skert þjónusta við íbúa, sér í lagi fatlað fólk, og gerir mörgum sveitarfélögum nánast ómögulegt að standa undir eðlilegum og nauðsynlegum launahækkunum en þau borga eins og kunnugt er lægri laun en starfsmenn hjá ríkinu fá.

Er hæstv. forsætisráðherra sammála mér um að þetta geti orðið afleiðingin? Telur hún virkilega að slík aðgerð myndi skapa sátt í stöðunni sem nú er í landinu?