útgjöld vegna hælisleitenda.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Af því að spurt er til hvaða aðgerða ráðherra hafi þegar gripið, er það ekki svo að við höfum formlega gripið til aðgerða vegna þessa. Ég hef þó verið upplýst um stöðuna. Það sem ég hugsaði fyrst var að við hlytum að fagna þessu nýlega regluverki okkar, að fyrirkomulagið væri með þessum hætti. Það er ekki langt síðan að það var alls ekki svo. Ábyrgðin er orðin skýrari, þ.e. hvar hún á heima hverju sinni hverju í ferli þegar fyrir liggur að t.d. fjárútlát verði meiri en gert er ráð fyrir í römmum.
Núna erum við að vinna að því í ráðuneytinu að kalla eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um hvað sé mögulega hægt að gera til að bregðast við þessari stöðu, fara yfir það og leggja í framhaldinu til ákveðnar tillögur.
Vandinn sem verið hefur mörg undanfarin ár og virðist vera enn þá, og það var upprifjun fyrir mig þegar ég kom þarna aftur inn, er sá að finna hvernig kerfið getur tekið á því þegar við þurfum að bregðast þannig við að okkur vantar frekari þunga og kraft í að afgreiða mál hraðar til að koma í veg fyrir að fjöldi fólks sé í þjónustu, í bið of lengi.
Það er algerlega viðurkennt að það er ekki gott fyrir neinn, sérstaklega ekki þegar kemur síðan í ljós að viðkomandi fær ekki heimild til að vera hér, fær ekki alþjóðlega vernd og er þá sendur til baka. Þá er ekki gott að hafa verið hérna í töluvert langan tíma, myndað tengsl og það allt saman. En það er algerlega viðurkennt að það er allra hagur að afgreiða málin skjótt, þó þannig að þau séu vel unnin, og að kerfið sé skilvirkt. Það er í rauninni verkefnið, þ.e. hvernig við getum verið með kerfi þar sem við getum brugðist við, hvenær (Forseti hringir.) við þurfum að leggja meiri þunga í að afgreiða mál hraðar, á móti því að fjármunirnir fari í þjónustu þegar (Forseti hringir.) sá fjöldi eykst þeim megin.