samningur um stöðuna eftir Brexit.
Virðulegi forseti. Ég þakka hamingjuóskir hv. þingmanns, sem voru áberandi í þessari fyrirspurn. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við förum yfir það hér í þinginu þannig að allir viti hvaða samráð hefur átt sér stað varðandi Brexit. Ég held að það sé mjög mikilvægt. Þá getur hver og einn dæmt það fyrir sig hvort hér hafi ekki verið um nægilegt samráð að ræða. Ef menn reyna ekki að fá upplýsingar í hv. utanríkismálanefnd, sem gerist náttúrlega helst með því að fá minnisblöð þannig að hv. nefndarmenn geti farið yfir málin og komið með athugasemdir og fyrirspurnir, fyrir utan þann fjölda funda embættismanna sem haldnir hafa verið, og svo sannarlega hef ég mætt fyrir hv. utanríkismálanefnd til að ræða þessi mál, verður hv. utanríkismálanefnd eða einstakir nefndarmenn að koma með leiðbeiningar um hvernig við eigum að vinna hlutina hér. Ég hafna því algerlega að ekki hafi verið haft nægt samráð út af þessu máli, og ekki bara við hv. utanríkismálanefnd og þingið, heldur einnig við hagsmunaaðila og önnur ráðuneyti.
Ég vek athygli á því að haustið 2017 kom út stór skýrsla sem allir gátu séð, hún var opin fyrir öllum, um hvernig unnið væri í þessu máli. Ég ætla ekki að fara að karpa við hv. þingmann. Ég vil bara að þessar upplýsingar liggi ljósar öllum og að hver og einn geti tekið afstöðu til þess hvort hér hafi verið um nægilegt eða mikið samráð að ræða eða ekki.
Ef hv. þingmaður hefur kynnt sér fréttir varðandi þennan ágæta samning sér hann að þetta er eðli máls samkvæmt bráðabirgðasamningur, og við vitum ekki hvort hann tekur gildi. En nú erum við búin að dekka þær sviðsmyndir sem komið geta upp ef um útgöngu verður að ræða, og síðan förum við í framtíðarsamning. Ég skal fara yfir tækifæri varðandi samskipti við Breta í síðara andsvari mínu.