149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

skráning og mat fasteigna.

212. mál
[15:25]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni andsvarið. Já, ég er fyllilega meðvitaður um að hv. þingmaður sat í sveitarstjórn og þekkir þessi mál vel. Þetta er mjög mikilvæg mikilvægur málaflokkur og mikilvægur tekjustofn sem skiptir sveitarfélögin verulegu máli og þá verður öll áætlanagerð mjög mikilvæg.

Þetta var ekki sérstaklega rætt. Það sem hv. þingmaður bendir á má segja að sé eitthvað sem sveitarfélögin ættu frekar að beita sér fyrir, vegna þess að áætlanagerð er mikilvæg. Það þekkjum við núna rétt áður en við förum í ríkisfjármálaáætlun sem leggur grunninn að fjárlögum, og því er ekkert ósvipað farið í fjármálum sveitarfélaganna. Þar blasir við að jafn mikilvægur tekjustofn og þessi, sem kemur þetta seint, eftir að fjárhagsáætlun liggur fyrir, er ekki endilega grunnur að skilvirkri áætlanagerð. En það var ekki rætt sérstaklega í nefndinni.

Nefndin leggur áherslu á það og var mikið fjallað um það í tengslum við málið í heild sinni að fram færi heildarendurskoðun. Þegar við ræðum svona matsaðferðir skipta upplýsingarnar öllu máli. Ég held að ef hægt er að treysta þann grundvöll að réttustu upplýsingarnar liggi fyrir verði matið nær raunveruleikanum, sé hægt að færa það nær í tíma. Ég get ímyndað mér það.