skráning og mat fasteigna.
Herra forseti. Við erum að fjalla um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna, með síðari breytingum, ákvörðun matsverðs. Mig langar að koma aðeins inn í þetta mál og ræða það sem frumvarpið tekur helst á. Eins og hv. framsögumaður fór yfir hefur komið fram gagnrýni á það hvernig fasteignamati hefur verið háttað, m.a. með þessari tekjuaðferð og ekki gert ráð fyrir því að festa hana í sessi með frumvarpinu sem hér.
Fram kemur að það sjónarmið hafi komið fram að þegar fasteignamat væri ákvarðað ætti að leita eftir því að finna gangverð eigna. Það væri einungis þegar matsverðið væri ekki vitað sem hægt væri að afla vitneskju um gangverð sambærilegra eigna þar sem undir væri samþætt mat margra þátta, m.a. tekna. Það væri reyndar undantekning á þeirri reglu sem byggir á öðrum þáttum en hinu hefðbundna gangverði.
Talað er um að það standist ekki að ákvarðanir um matsverð með tekjuaðferð geti leitt til skattahækkana fyrir atvinnulífið langt umfram verðlagsbreytingar og að það geti leitt til víxlverkandi hækkana fasteignagjalds og leiguverðs. Einnig kemur fram að það eigi að endurspegla gangverð. Ráðuneytið taldi ekki heppilegt að fresta málinu.
Um 1. gr. segir, með leyfi forseta:
„Með árlegu endurmati fasteignamats er stöðugt unnið að því að bæta aðferðafræði fasteignamatsins.“
Talað er um að við ákvörðun um matsverð fasteignar koma þrjár matsaðferðir helst til greina, markaðsaðferð, tekjuaðferð og markaðsleiðrétt kostnaðaraðferð. Það er í rauninni misjafnt hvaða aðferðir eru notaðar en horft er til kaupsamninga í öllum aðferðunum til að fá vísbendingar um gangverð. Tekjuaðferð notar kaup- og leigusamninga til að meta sérstaklega verslunar-, skrifstofu- og atvinnuhúsnæði og léttar iðnaðargreinar. Markaðsaðferðin tekur hins vegar algjörlega mið af kaupsamningum.
Vitnað er til þess að árið 2009 hafi verið tekin upp ný aðferðafræðin, þ.e. markaðsaðferðin. Þá kemur að öðrum hluta þess sem málið fjallar um sem er Þjóðskrá Ísland. Hún hefur haldið kaupverðsskrá lengi sem grundvallast á þeim þinglýstu kaupsamningum fasteigna sem eru til staðar.
Hér er segir að þegar fasteignamatið var framreiknað árlega hafi gangverð eigna breyst úr takti við þróun í landinu og þannig myndast skekkja, sérstaklega í mati á atvinnuhúsnæði. Þess vegna var tekjuaðferðin lögð til og ákveðin.
Þetta mál snýr töluvert að annars vegar tekjuaðferðinni og hins vegar aðgangi Þjóðskrár Íslands. Það eru alltaf skiptar skoðanir um það hver aðgangur á að vera á milli ríkisstofnana, um hvers konar upplýsingar er að ræða, ég tala nú ekki um á tímum nýrra persónuverndarlaga. Við þurfum að velta því fyrir okkur á öllum tímum hversu langt við göngum á sama tíma og okkur þykir tilhlýðilegt að einhverjar stofnanir hafi meiri aðgang en aðrar.
Í greinargerðinni var misræmi þar sem talað var um vistun gagna og aðgang gagna og ekki lá fyrir í ákvæðinu sjálfu að gögnin yrðu einungis vistuð hjá ríkisskattstjóra. Ekki var gert ráð fyrir því heldur að Þjóðskrá fengi aðgang að fylgigögnum með skattframtölum eða leigusamningum. En hér segir að samkvæmt ákvæðinu yrði Þjóðskrá veittur aðgangur að fylgigögnum almennt, þannig að ekki yrði gerður greinarmunur á öllu aðgangssafninu og svo tilfallandi aðgangi að leigusamningum.
Þjóðskrá hefur aðgang að skattframtölum til að sannreyna upplýsingar um fasteignir eða hafa tök á því að afla þeirra ef svo ber undir, til að halda utan um stofnanaskráningu. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að tryggja lagagrundvöllinn til aðgangs að gögnum þannig að hægt væri að gera atlögu að því að reikna út markaðsverð fasteignar og um leið að álagning yrði réttlát, bæði opinberra gjalda og annarra skatta.
Fram kemur í greinargerðinni að breytingin, þ.e. að Þjóðskrá hafi aðgang að öllum upplýsingum til að geta ákvarðað matsverð fasteigna, sé forsenda þess að hún hafi til þess bærar upplýsingar í samræmi við framkvæmdina. Það kemur líka fram að leiguverðsskráin sem stuðst er við þjóni ekki hlutverki sínu enda ekki skylt að þinglýsa leigusamningum. Fasteignaeigendur hafa sumir hverjir þótt tregir til að láta í té upplýsingar um leigu eða leigutekjur, þrátt fyrir að væntanlega flestir geri það eins og ber að gera.
Eins og ég sagði skiptir persónuverndarlöggjöfin máli og nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að gæta öryggis og meðalhófs þegar veittur er aðgangur að gögnum eins og um ræðir, bæði þegar kemur að vistun gagna hjá ríkisskattstjóra og því að afmarka aðgang Þjóðskrár. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu varðandi samningana sem ríkisskattstjóri hefur undir höndum um útleigu fasteigna, og þá sérstaklega í virðisaukaskattsskyldri starfsemi, að Þjóðskrá verði veittur aðgangur að þeim gögnum sem nýtast til ákvörðunar matsverðs fasteigna og gerir hér breytingu á því.
Eitt í lokin um endurgjald. Talað er um að sjónarmið hafi komið fram um hvort gera ætti ráð fyrir því að ef vinnsla og afhending gagnanna sem ég rakti berast ekki á rafrænu formi megi Þjóðskrá innheimta gjöld fyrir það. Nefndin telur að þetta eigi að vera án endurgjalds. Ég tek alveg undir það. Það er hálfgerður óþarfi að þurfa að borga fyrir upplýsingar á milli tveggja ríkisstofnana sem eiga að hjálpa til við úrvinnsluna. Þá væri verið að færa úr einum vasa í annan sem ætti að vera óþarfi.
Mig langar í ljósi þess að við erum að fjalla um fasteignamat eða fasteignaskatt að nýta tækifærið og ræða um fasteignaskatta. Eins og kom fram í andsvari hjá hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni snýr þetta að mjög miklu eða stærstu leyti að sveitarfélögunum. Ef við horfum aðeins til baka, það þarf ekki að fara lengra en til 2017, hafa fasteignagjöld og fasteignaskattar hækkað gríðarlega mikið. Þann 31. desember tók í gildi nýtt fasteignamat sem Þjóðskrá birti og gilti fyrir síðasta ár. Þá hækkaði samanlagt fasteignamat íbúða í landinu um 15,5%. Það eru tæpir 5.000 milljarðar, sem sagt tvöföld heildarframleiðsla landsins árið á undan. Þetta er gríðarleg hækkun sem kemur fyrst og síðast við þá sem eiga eignirnar. Þegar talað er um betri eignastöðu fólks er það oft og tíðum fyrst og fremst vegna þess að fasteignamatið hækkaði en það hafði ekki endilega meira á milli handanna, þ.e. ráðstöfunarfé fólks jókst ekki þótt eignin hækkaði í verði vegna þess að fyrst og fremst var um að ræða tæknilega hækkun og svo auðvitað hærri gjöld. Það má eiginlega segja að fólk hafi haft minna á milli handanna ef eitthvað var í kjölfar þessara miklu hækkana.
Mestu hækkanirnar á þeim tíma voru á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignaverð hækkaði en þeir sem voru ekki á þeim buxunum að selja fengu ekkert í vasann. Mesta hækkunin var á Seltjarnarnesi, 18,8%, og á Akranesi en minnst í Garðabæ, 13,7%. Svo árið 2018, vegna 2017, var það landsbyggðin. Þar var Húsavík með hækkun upp á 42,2%. Það er ekkert smáræði þegar maður hugsar til þess hvað fasteignagjöldin manns hækka. Einhver sveitarfélög sáu rými til að lækka hluta gjaldanna en ekki fasteignaskattana. Því var lofað fyrir kosningar núna síðast af ansi mörgum að fasteignaskattar yrðu lækkaðir. Heima hjá mér voru holræsagjöld lækkuð eitthvað smávegis en fasteignaskatturinn ekki, af því að það hefði haft áhrif á jöfnunarsjóðinn. Svo mörg og stór voru þau loforð.
Árið 2017 hækkaði mismikið, eins og við þekkjum, eftir því hvar það var innan höfuðborgarsvæðisins. Það var alveg 22% mismunur og þetta var bara tveggja ára breyting. Mér finnst vert að skoða hvað er undir á hverjum tíma. Ég er ekki viss um að öll sveitarfélögin hafi haft tækifæri til að lækka það sem um var rætt. Gjöldin eru samsett úr mörgu.
1. júní í fyrra hækkaði fasteignamat um tæp 13% og þá, af því að ég nefndi áðan töluna árið 2017, 5.000 milljarðar, mun það hækka í 8.000, verða 8.364 milljarðar. Það er engin smáræðishækkun, tæpir 3,5 milljarðar. Þá snerist dæmið hins vegar við og Reykjanes var undir. Hækkunin var samanlögð tæp 13% en fasteignamatið hækkaði gríðarlega á Reykjanesi, eins og það gerði á Húsavík árið á undan, um 41%. Það er mjög mikilvægt að því sé haldið til haga að utan höfuðborgarsvæðisins þarf ekki nema fáar sölur til að rífa svona hluti verulega upp, sem endurspeglar ekki endilega markaðsverð almennra eigna. Árið 2018 var það 20% utan höfuðborgarsvæðisins, 15% yfir landið og 12,5% á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignamatið hækkaði mest á Suðurnesjunum, eiginlega á öllum Suðurnesjunum, og hefur það ákveðnar skýringar. En bara af því að ég nefndi að það hækkaði á milli svæða var meðalhækkunin á höfuðborgarsvæðinu í fyrra 10,3% en hins vegar hækkaði á Ásbrú, sem hefur komið til tals, um 98%. Það hefur einhverjum brugðið við sem þurfti að borga fasteignagjöld þar. Þótt sveitarfélög hafi séð tækifæri til að lækka eitthvað á móti er þetta ekkert smáræði. Í Sandgerði var það um 39, í dreifbýli á Reykjanesi um 35 o.s.frv., allt á sömu nótum.
Það er því að mörgu að hyggja. Að sjálfsögðu er margt sem veldur því að fasteignaverð hækkar. Þjóðskrá heldur úti verðsjá þar sem maður getur skoðað gangverð fasteigna og hægt er að sjá íbúðarhús, atvinnuhúsnæði, sumarhús o.fl. Hægt er að greina landið eftir landshlutum eða á matssvæðum og hvernig fasteignamatið skiptist og líka hægt að sjá verðþróun á tilteknu svæði út frá fyrirliggjandi kaup- eða leigusamningum.
En það er sem sagt talað um að flestar eignir séu endurmetnar út frá tilteknum matsforsendum sem skoðaðar eru árlega og byggja fyrst og fremst á þinglýstum kaupsamningum en eins og kom fram er atvinnuhúsnæði með í því tekjumati.
Það væri áhugavert að finna samantekt á matsbreytingu sveitarfélaga á heimasíðu Þjóðskrár Íslands og mismunandi aðferðum sem notaðar eru, það eru mismunandi formúlur sem gilda fyrir yfirstandandi ár og mörg önnur gögn. Frá og með 15. júní er hægt að nálgast seðil um mat á eignunum á island.is. Maður sér það sjálfur þegar maður skoðar á milli ára, eftir kosningaloforð sem hljóðuðu upp á lækkun fasteignaskatts, að gjöldin hækka. Það er margt annað undir, til að mynda holræsagjöld, sorpgjöld o.fl. Þegar eitt er lækkað og annað hækkað er niðurstaðan ekki endilega neytandanum í hag. Það getur alveg verið að fólk almennt spái ekki mikið í sundurliðun á fasteignagjaldaseðlinum sínum. Ég hef gert það af og til í gegnum tíðina en það var aðallega til að fylgjast með sorphirðugjöldunum, vegna þess að við fórum í flokkunarkerfi, sem er vel og átti að skila okkur ódýrari gjöldum sem það hefur reyndar ekki gert. En það er annað mál, það tekur tíma að innleiða hluti og allt það. Þetta er alla vega eitthvað sem skiptir fasteignaeigendur miklu máli.
Þegar fólk er ekki í söluhugleiðingum heldur vill búa í eign sinni eru hækkanirnar síðustu tvö, þrjú ár ansi grimmar, þetta eru gríðarlega hækkanir sem lækka ráðstöfunartekjur fólks enn frekar.
Það er að mörgu að hyggja. Þótt það sem hér er undir sé kannski bara hluti af því finnst mér þessi vangavelta allt of lítið rædd. Gleymum því ekki að hækkanir á þessum gjöldum ýta undir hærri leigu af því að þeir sem eiga eignirnar þurfa að borga meira, og hver finnur fyrir því? Eigandinn eða leigjandinn í þessu tilfelli. Það er víxlverkun í því.
Virðulegi forseti. Ég sé að nefndin hefur komist að þessari breytingu hvað þetta varðar, bæði um endurgjaldið, sem ég er ánægð með, og það að takmarka aðganginn að því sem stofnunin þarf til að geta sinnt starfi sínu. Í sjálfu sér styð ég þetta mál.