149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

skráning og mat fasteigna.

212. mál
[15:47]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fara nokkrum orðum um frumvarpið sem við ræðum hér. Fyrst langar mig að benda á þá breytingu sem við í hv. allsherjar- og menntamálanefnd leggjum til varðandi það sem við nefnum meðalhóf í miðlun upplýsinga, að heimildin til miðlunar upplýsinga verði afmörkuð með skýrari hætti. Eins og hefur verið bent á þá er þetta á vissan hátt tímanna tákn. Við erum að takast á við nýtt umhverfi hvað varðar persónuupplýsingar, sem þessar upplýsingar teljast vera, og þar skiptir máli að fyrir liggi skýr heimild um nákvæmlega hvað það er sem má miðla í lögmætum tilgangi. Að því leytinu til er allsherjar- og menntamálanefnd hér að bregðast við þeim persónuverndarlögum sem við afgreiddum fyrir tæpu ári.

Það er eitt sem mig langar að velta upp sem tengist kannski ekki niðurstöðu þessa máls sem slíkri en er atriði sem kemur oft upp þegar við fjöllum um mál sem snerta ólíkar stofnanir og ólík ráðuneyti. Það hvernig skipurit Stjórnarráðsins og hvernig hlutverkum er skipt á milli stofnana vill stundum flækjast fyrir því hvernig við leysum úr málum. Eitt skýrt dæmi gæti verið það t.d. að við þurfum að tiltaka sérstaklega hver sjái um vistun gagna og að við á þinginu þurfum að tala um upplýsingakerfi tveggja stofnana sem eiga samskipti úti í samfélaginu, þegar hið opinbera á bara að hafa samræmt upplýsingakerfi og einhverja heildarstefnu um það hvernig viðkvæmum upplýsingum sem skipta máli fyrir grunngerð samfélagsins er miðlað á milli aðila.

Fyrst það er Pírati sem situr í forsetastól þá er kannski rétt að nefna hugmyndir sem hafa komið úr þeim herbúðum um gagnastjóra ríkisins, ef ég man rétt, herra forseti. Nei? Að minnsta kosti hefur Smári McCarthy verið með hugmyndir um miðlægan aðila sem sæi um upplýsingakerfi og tækniþróun Stjórnarráðsins og stofnana þess. Ég held að það sé full ástæða til að vekja máls á því og fara að þoka okkur í þá áttina þannig að hver stofnun fyrir sig sé ekki að finna upp hjólið.

Þegar kemur að skiptingu verkefna milli stofnana þá skulum við aldrei líta svo á að sú skipting sé meitluð í stein. Ef við tökum þann málaflokk sem við ræðum hér sem snertir skráningu fasteigna þá er allur gangur á því hvernig hann flokkast undir stofnanir í nágrannalöndum okkar. Til að mynda eru Danir með sameiginlega stofnun sem heldur utan um landupplýsingar, sem er hliðstæða Landmælinga Íslands, en þessi stofnun hefur jafnframt á hendi það hlutverk sem fasteignaskrá hefur og er hjá okkur vistuð innan Þjóðskrár Íslands. Ef boðleiðirnar á milli stofnana eru almennilega uppsettar og ganga vel þá á þetta ekki að skipta neinu máli í sjálfu sér. Þá skiptir ekki máli hvar verkefnin eru unnin ef þau eru unnin nokkuð samhent. Reyndin virðist hins vegar vera sú að það skiptir máli þegar málaflokkar falla milli stofnana. Þess vegna tel ég mikilvægt að við vinnum að samræmingu þeirra kerfa þar sem unnið er með grunngerð samfélagsins.

Önnur birtingarmynd þessa er sú hugmynd sem kemur alltaf upp þegar ein stofnun lítur svo á að hún sé að vinna verkefni fyrir aðra, þ.e. að stofnanir fari að greiða hver annarri gjald fyrir eitthvað sem við á Alþingi ákveðum að hið opinbera eigi einfaldlega að gera. Gjaldfrjáls miðlun upplýsinga ætti almennt að vera útgangspunkturinn en miðlun á milli ríkisstofnana ætti að vera svo sjálfsögð að þetta samtal ætti ekki að þurfa að eiga sér stað, en þetta kemur reglulega upp. Það þarf vinna í ákveðnum kúltúrbreytingum hjá stofnunum. Kannski þarf að ræða innan ráðuneyta hvort fjármögnunarlíkan stofnana sé of viðkvæmt, hvort hluti af stöðugildi geti vaxið stofnunum í augum við ný verkefni og hvort það sé eitthvað sem megi takast á við þegar kemur að langtímarekstraráætlunum stofnanna.

Þetta frumvarp snýst um að Þjóðskrá geti sinnt ákveðnu hlutverki sínu til fulls, því hlutverki að halda utan um leiguverðsskrá. En þó að samþykkt þessa frumvarps dugi væntanlega til þess að stofnunin sinni því hlutverki á fullnægjandi hátt þá kom fram við umfjöllun nefndarinnar að væntanlega væru ríflega 1.000 virðisaukaskattsnúmer að baki þeirri vinnslu sem hér um ræðir, eitthvað fleiri leigusamningar væntanlega af því að það geta verið margir samningar á bak við hvert virðisaukaskattsnúmer. Það er tæplega nema lítill hluti þess leigumarkaðar sem til staðar er og væri hægt að nota til að meta leiguverð í landinu.

Þá væri alveg hægt að eyða nokkrum orðum í það, eins og við gerðum í nefndinni, að ræða hvort það hafi jafnvel verið skref aftur á bak að aflétta þeirri skyldu að þinglýsa leigusamningum. Stórum hluta leigusamninga í landinu er ekki þinglýst. Þar með mun þessi skrá, hvort sem við byggjum hana á þeim gögnum sem lágu hjá Þjóðskrá og þóttu ófullnægjandi eða bætum hana með þeim upplýsingum sem ríkisskattstjóri býr yfir, aldrei veita þá heildarsýn sem væri hægt, myndi maður halda, að búa til hér á landi, heildarsýn sem mér finnst ríma betur við framkvæmdina í landi þar sem nær öll skattframtöl eru rafræn og tekur eina til tvær mínútur fyrir einstaklinga að klára. Á sama tíma þarf að selflytja frá ríkisskattstjóra yfir til Þjóðskrár þann litla hluta leigusamninga sem þinglýst hefur verið til þess að það sé hægt að reikna út meðalleiguverð í landinu.

Ég held að það sé full ástæða fyrir ráðuneytin að skoða hvort það sé hægt að gera þetta með skilvirkari hætti í framtíðinni og þá jafnframt þannig að við náum skýrari heildarsýn. Eins læddist að mér sú tilfinning við umfjöllun nefndarinnar að ráðuneyti mættu fara að temja sér nýtt verklag þegar kemur að verkefnum sem snerta fleiri en eitt ráðuneyti. Það var augljóslega nokkuð, ég ætla ekki að segja ólík sýn, en það var ekki alveg sameiginlegur skilningur Þjóðskrár og ríkisskattstjóra á því verkefni sem lagt er til í frumvarpinu þegar það kom til afgreiðslu þingsins. En með því að taka utan um málið innan nefndarinnar og láta í rauninni Þjóðskrá bara ræða við ríkisskattstjóra þá náðist lending sem endurspeglast í nefndarálitinu. Þetta hefði mögulega verið hægt að afgreiða á fyrri stigum í ráðuneytum þannig að hingað til Alþingis kæmi fullmótaðra mál. Þetta er til þess að gera lítið og einfalt frumvarp þannig að þessi aukakrókur við umfjöllun nefndarinnar skaðaði ekki neitt en maður getur alveg ímyndað sér að í stærri málum, sérstaklega málum sem snerta fleiri en tvö ráðuneyti, geti þetta örugglega verið fjötur um fót. Þarna þarf að finna betri takt í því að ráðuneyti, án þess að segja stofnunum annarra ráðuneyta fyrir verkum, nái einhverri lendingu í því að skipta verkum milli ráðuneyta.

Þá held ég að þessu sé nú lokið hjá mér. Þetta voru þeir örfáu punkta sem mig langaði að koma að. Síðan er ágætt að halda því til haga, eins og hv. framsögumaður nefndarálits gerði, að þetta mál er hluti af stærri umræðu. Líkt og kemur fram í umsögnum bæði Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka atvinnulífsins er aðferðafræði við ákvörðun fasteignamats í mótun. Hér er í raun bara verið að festa í sessi verkfæri til þess en við eigum væntanlega ókláraða stærri umræðu um hvað það er sem við viljum nota til að ákvarða matsverðið, hvaða upplýsingar eigi vegast inn í það og hvernig það eigi síðan að hafa áhrif á tekjustofna sveitarfélaga í fyrsta lagi, álagningu á atvinnulífið í öðru lagi og í þriðja lagi fasteignagjöld á almenning. Það var ekki verkefni okkar að hreyfa við því í þessu frumvarpi en ég vænti þess að það samtal muni eiga sér stað í ráðuneytum í framhaldinu.