149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

655. mál
[16:58]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018 sem mælir fyrir um að tvær reglugerðir Evrópusambandsins verði felldar inn í EES-samninginn.

Í reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/438 er kveðið á um nánari útfærslu á ákvæðum gildandi tilskipunar Evrópusambandsins um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði. Þannig er kveðið á um hvað eigi að koma fram í skriflegum samningi milli vörsluaðila og rekstrarfélags verðbréfasjóðs eða verðbréfasjóðs. Jafnframt er kveðið nánar á um hlutverk vörsluaðila. Þá er kveðið á um eftirlitsferla vegna útvistunar ákveðinna verkefna vörsluaðila til þriðja aðila. Loks er fjallað nánar um ábyrgð vörsluaðila.

Í reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1212 er einnig kveðið á um nánari útfærslu á ákvæðum gildandi tilskipun Evrópusambandsins varðandi verðbréfasjóði. Í henni er útlistað hvaða ferlar skuli viðhafðir við að veita upplýsingar varðandi eftirlit með verðbréfasjóðum innan aðildarríkja ESB. Reglugerðin hefur jafnframt að geyma stöðluð form um hvernig slíkar upplýsingar skuli sendar.

Umræddar reglugerðir fela í sér nánari útfærslu á ákvæðum tilskipunar sambandsins um verðbréfasjóði. Fyrirhugað er að innleiða ákvæði þeirrar tilskipunar með breytingu á lögum nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði og er stefnt að því að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram frumvarp þess efnis á næsta löggjafarþingi. Gert er ráð fyrir að umræddar reglugerðir verði innleiddar með setningu reglugerða í kjölfar samþykkis þess frumvarps.

Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.