ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Þegar maður fer af stað þá hættir maður ekki. Það getur alveg endað þannig. En þetta mál finnst mér afskaplega áhugavert, ekki síst í ljósi þess að fyrr í dag vorum við að ræða neytendamál. Þetta er ekkert annað en alvöruneytendamál, þ.e. um greiðslur sem við þurfum og höfum þurft að inna af hendi, milligjöld fyrir kortin okkar sem við erum alltaf að nota.
Það er verið að setja ákveðið hámark á milligjöld sem færsluhirðar greiða kortaútgefendum vegna notkunar slíkra korta og eru þau mismunandi, ýmist 0,2% eða 0,3% vegna kreditkorta. Einnig er kveðið á um bann við svæðisbundnum takmörkunum, bæði í samningum og kortakerfinu. Það sem er ekki síður mikilvægt er að aðgreina á í sundur greiðslukortakerfin og vinnsluaðilana og er mælt fyrir um aukin úrræði bæði korthafa og söluaðila til að ákveða greiðslumáta, sundurliðun þjónustgjalda færsluhirða og upplýsingagjöf þeirra til söluaðila. Þetta er fyrst og fremst til að lækka kostnað, bæði þeirra sem selja vöruna og okkar neytenda. Þetta á að stuðla að samþættingu og bæta sanngirni greiðslukortamarkaða þvert á landamæri innan Evrópu.
Ég held að við þekkjum það öll að borga óhófleg gjöld fyrir notkun okkar í bankakerfinu, hvort sem það er rafrænt á netinu eða tengt kortafærslum, hvort sem við erum úti í heimi eða hérna heima, það skiptir ekki máli.
Ég held að allt sem snúi að því að stýra því regluverki í átt til lækkunar á þeim kostnaði sem hér er undir skipti verulegu máli fyrir neytendur. Þetta hefur ítrekað verið kallað á og er vonandi eitt af því sem verður undir þegar neytendalöggjöfin eða stefnan í neytendamálum kemur úr ráðuneyti iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þetta er lagastoð sem ég held að almenningur komi til með að fagna og verður vonandi lyft.
Fjármálaráðherra er búinn að leggja fram frumvarp til að innleiða gerð um hámark á milligjöldum. Ég held að bankakerfið hafi verið gagnrýnt fyrir alls konar gjöld. Við þyrftum vita hvort það væru fleiri gerðir sem gætu hjálpað okkur í því að koma böndum á bæði ósýnileg og sýnileg gjöld sem við greiðum fyrir þá margvíslegu þjónustu sem við nýtum okkur í kerfinu.
En það er eins með þetta og málið á undan, ég ætlaði rétt aðeins að nefna það. Mér finnst slík mál oft mjög tæknileg og þannig að fólk nennir ekki að lesa þau, finnst þau of flókin og torskilin, sem þau eru. Það er gjarnan þannig með EES-málin að þau eru mjög torskilin og það þarf mikinn lestur til að komast í gegnum þau. En þetta er einfalt og gott mál.