ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Það fór aldrei svo að ég sæi ekki ástæðu til að tala í EES-máli eins og þessu. Það er ekki af tilviljun heldur vegna þess, eins og bæði hæstv. ráðherra og hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir komu inn á áðan, að mál því tengt er nú þegar til umfjöllunar í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og hefur raunar þegar verið fjallað aðeins um það þar.
Þetta er nefnilega dálítið mikið og stórt neytendamál sem er á ferðinni. Til að setja það í samhengi fyrir hv. þingmenn kemur fram í greinargerðinni með lagafrumvarpinu að þær greiðslur sem þarna eru undir nemi líklega um 2,1 milljarði á ári, þ.e. þau gjöld sem neytendur greiða, milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur. Þetta er upphæðin.
Nú liggur fyrir þinginu frumvarp til laga um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur. Þar er gert ráð fyrir að slíkar greiðslur verði lækkaðar umtalsvert og að kostnaður neytenda samkvæmt því frumvarpi lækki umtalsvert, um ríflega 1 milljarð kr.
Í því samhengi að heildarkortagreiðslur innan lands, kortavelta innan lands, námu rúmlega 350 milljörðum á síðasta ári kynni einhver að segja að 1 milljarður breytti þeirri mynd ekki stórkostlega. Engu að síður er þetta umtalsverð upphæð og einhvers staðar segir að molar séu líka brauð. Þetta eru ekki peningar sem menn tína upp af götunni og þess vegna held ég að þetta mál sé ljómandi gott. Það er gott að við skulum vera að stíga þau skref hérna.
Eins og þingmönnum er kunnugt um hreyfa menn sig orðið varla, alla vega ekki á venjulegum degi, öðruvísi en að taka upp annaðhvort kredit- eða debetkort og ef þeir gera það ekki má gera ráð fyrir að stór hluti af daglegu lífi þeirra fari í gegnum kreditkortafærslur á bankareikningum þeirra, sem eru líka andlag greiðslna sem þarna er undir. Þetta hefur því áhrif á alla neytendur og skiptir í því sambandi mjög miklu máli.
Það er mikilvægt fyrir neytendur að hafa tilfinningu fyrir því að stjórnvöld komi þeim til varnar, skulum við segja, að stjórnvöld séu að reyna að bæta stöðu þeirra. Það er sérstaklega gleðilegt að innleiðing þeirrar EES-gerðar sem um ræðir sé skref í þá átt.
Þetta er mál sem nánast allir neytendur munu finna á eigin skinni. Þótt það mætti reikna sig niður á að þetta sé kannski ekki há upphæð á hvert íslenskt heimili er samt um að ræða töluverða peninga og gott mál að það skuli koma til umræðu .
Ég vona að hv. utanríkismálanefnd, sem ég sé að hér í salnum eru nokkrir fulltrúar úr, muni afgreiða þetta mál fljótt og vel og koma því aftur til þingsins þannig að við getum afgreitt það.