verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Stundum er sagt að dropinn holi steininn. Það má kannski segja sem svo að nú þegar við fjöllum um þetta svokallaða áfengisfrumvarp einu sinni enn freistist maður til að horfa á þá mynd. En ekki er allt sem sýnist í þeirri mynd vegna þess að kannanir og umsagnir, greinaskrif og fleira, sýna að fagfólk, heilbrigðisstofnanir, ýmiss konar samtök, ráðuneyti og fleiri aðilar eru mótfallin leiðinni sem frumvarpið boðar. Ég myndi segja: meiri hluti almennings sömuleiðis.
Þannig að dropinn holar steininn, já. En svo vill til, ef við höldum okkur þá myndlíkingu, að steinninn stækkar í sífellu. Andstaðan við þessa leið vex. Það eru æ fleiri sem vilja óbreytta stöðu áfengissölu í landinu.
Hér takast á tvær andstæður í þessu efni. Önnur snýst um forvarnir og lýðheilsu og áhyggjur af auknu aðgengi að alkóhóli, og hin snýst um áhuga viðskiptaaðila á hagnaði af áfengissölu og frelsi til viðskipta.
Nú er hagnaður af sölunni nýttur í samfélagslegu skyni í gegnum ríkið. Það er augljóst að flestir vilja hafa það þannig, af augljósum ástæðum, því að ríkið styrkir og greiðir fyrir margt sem tengist áfenginu og neyslu þess.
Einnig er horft til þess að frelsi fylgir ábyrgð — ábyrgð á hvert aðgengi að áfengi er í raun og veru. Það er tiltölulega opið núna og þar við situr. Það á að vera þannig áfram. Í nútímasamfélagi eru sett lög og reglur og boð og bönn og sumt af því öllu snýst um lykilorðið í þessu efni, sem er lýðheilsa, og þá staðreynd að einn af hverjum tíu fullorðnum einstaklingum á Íslandi á í erfiðleikum með áfengi, mismiklum, þar með talinn sjúkdóminn alkóhólisma. Á því þarf að taka með forvörnum, með aðstoð, með reglum og pólitík sem miðar að því að grafa að rótum áfengisvandans og takast á við hann þar að því marki sem það er unnt á félagslegan hátt.
Við vitum öll að samfélagið takmarkar og hindrar jafnvel aðgengi að atburðum, hátterni, efnum og öðru sem eykur aðeins á kostnað samfélagsins við að lagfæra og lækna og lina það sem aflaga fer, t.d. bæta heilsutjón og koma í veg fyrir slíkt. Allt er það til góða fyrir borgarana. Þess vegna er þessu frumvarpi andæft jafn stíft hér á Alþingi og verið hefur í öll þessi ár. Og þess vegna viljum við, margir þingmenn, ekki auka aðgengi að áfengi umfram það sem nú er.
Herra forseti. Alkóhólneysla í lítrum talið á hvert mannsbarn á Íslandi hefur aukist hægt og bítandi og samfélagsvandinn sömuleiðis. Því getur enginn neitað. Það er sannast sagna undarlegt að ræða hér einn daginn um aukið aðgengi að áfengi og hlusta annan daginn á kröfur um aukin framlög til SÁÁ og fleiri aðila á heilbrigðis- og félagssviði. Engin reynsla, engar rannsóknir, ekkert álit fagmanna bendir til þess að auðveldara aðgengi að áfengi minnki ofbeldi tengt áfengisneyslu, fækki slysum, minnki heilsutjón, fækki harmleikjum og öðru slíku, þvert á móti. Meðal annars þess vegna er smásala og heildsala höfð á hendi hins opinbera en ekki hjá einkaaðilum. Þeir verða að láta sér nægja barina og veitingahúsin, hótelin og gistiheimilin, og selja áfengi þar og hagnast af því þar.
Flutningsmenn geta ekkert faglegt efni lagt fram — ég endurtek: Geta ekki lagt fram neitt faglegt efni, sem hrekur eitthvað af þessu eða styrkir þeirra málstað. Það er gaman að sjá það. Svo má horfa á hina hlið málsins, þ.e. hóflega neyslu áfengis, betri umgengni við þessa vöru. Hún fæst fyrst og fremst með vissu aðhaldi og þar með talið takmörkuðu aðgengi og vönduðum upplýsingum, jafnvel í því sem við getum kallað áróður, sérstaklega til ungs fólks. Síðast en ekki síst með bættum aðstæðum og betra lífi fjölmargra sem berjast í bökkum eða takast á við óhamingju. Bætt samfélag er einn lykillinn að minni áfengisneyslu. Við vitum það.
Það er mikilvægt að hnykkja á samfélagslegri stjórnun á fjölda vínbúða í stað markaðssamkeppni. Þessi stjórn eða stýring er takmarkandi, vissulega, rétt eins og stjórn á fjölda vínveitingastaða, því að það er ólíku saman að jafna, annars vegar ríkisstýringu eða samfélagstýringu og frjálsum markaði eða markaðsstýringu, sem er hagnaðardrifin. Það er engin ástæða til að fela þann sannleika í málinu.
Auðvitað er áhugi viðskiptaaðila fyrst og fremst sá að komast í þá peningajötu sem sala á áfengum drykkjum er á Íslandi.
Ég tel ljóst að aðgengi muni aukast við einkavæðingu smásölunnar og hvers kyns auglýsingar sem henni fylgja. Allt þetta mun hafa þau áhrif í þá átt. Ábyrgð frumvarpsflytjenda er sannarlega mikil og þeir vilja láta líta svo út að aðgengið aukist ekki við samþykkt þessa frumvarps, það sé aðeins tilfærsla á milli söluaðila. Því hafna ég.
Ég vil líka benda á að tekjur af sölu áfengis, enn og aftur, falla til þess sem mestan þunga ber af afleiðingunum, nefnilega til ríkisins. Það er betra en að þessar sömu tekjur gangi til verslana landsins, með fullri virðingu fyrir hlutverki þeirra og eigendum.
Herra forseti. Meðan við ekki náum að bæta úr ágöllum samfélagsins sem liggja að baki alkóhólneyslunni bætum við svo sannarlega ekki vandann með því að opna betur en þegar er gert á kaup áfengis, jafnvel í tilraunaskyni. Aðgengið er nægt og er á forræði samfélagsins.
Það má vel vera að við höfum í fjarlægri framtíð getu til að hafa sama hátt á sölu áfengis og t.d. í Mið-Evrópu, en þá þurfum við að hafa breytt mörgu. Það má minna á að áfengi á Íslandi er ekki mjög gömul vara og að misnotkun áfengis á Íslandi er ekki mjög gamalt samfélagsmein. Við líkjumst að sumu leyti meira nágrönnum okkar á Grænlandi þegar kemur að áfengi en Mið-Evrópuþjóðunum sem ég var að vitna til.
Í núinu skulum við andæfa trúarjátningu frjálshyggjunnar, sem ég kalla svo, því að um hana ber síendurtekin framlagning frumvarps sem þessa, stundum í breyttri mynd, augljóst vitni. Áfengi er alls ekki sérvara eins og hver önnur, eins og símar eða fæðubótarefni. Að halda því fram er að ögra allri skynsemi.
Ég get sagt sem svo að mín trúarjátning sé að ég er aðdáandi frelsis á ótal sviðum en hreint viðskiptafrelsi með áfengi er ekki farsælt.
Ég ætla að ljúka þessari ræðu minni á að minna á að ábyrgt frelsi og stýrt aðgengi og lýðheilsunálgun, tær lýðheilsunálgun, og virkar forvarnir eiga við í þessum efnum. Það á jafnt við núna og öll hin níu eða tíu skiptin sem við hv. þingmenn höfum eytt dýrmætum tíma þingsins í að endurtaka orð okkar, stundum lítið breytt, og andæfa frumvarpi sem mjög lítill hljómgrunnur er fyrir í samfélaginu.
Ég ætla að leyfa mér að leggjast með öllum þunga gegn þessu frumvarpi og lít svo á að sú hugmyndafræði sem hér er að baki eigi ekki erindi við íslenskt samfélag.