149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[17:46]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Óbreytt ástand. Það eru til, að mér er sagt, 1.200 vínveitingastaðir á Íslandi og 50 áfengisútsölur. Við vitum að neyslan hefur aukist í alkóhóllítrum úr 3–4 í 6–7, hallast kannski í 8 núna. Þetta helst sennilega í hendur þannig að fyrir mér er þetta ósköp bein lína. Ég tel að við eigum alls ekki að auka við þetta hlutfall í sjálfu sér. Þetta er býsna gott kerfi, ef við lítum svo á, eins og það er núna, og ég tel ekki að það þurfi að breyta því.

Ég vil minna á að ég lagði fram í ræðu tilvitnun í vísindagrein eftir 80 sérfræðinga í allnokkrum löndum sem gátu sýnt fram á beint samhengi milli aukins aðgengis (Forseti hringir.) að áfengi og aukins heimilisofbeldis og ofbeldis á götum úti. Þetta er mjög augljóst mál fyrir mér.