149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:01]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni fyrir ágætisræðu og innihaldsríka um þetta málefni sem skiptir alla landsmenn miklu máli, sérstaklega frá lýðheilsusjónarmiði að mínu mati.

Hv. þingmaður kom inn á áfengisauglýsingar. Það er nú svo að markaðssetning áfengis er iðnaður á heimsvísu. Þó svo að þær séu bannaðar á Íslandi er farið á svig við það með ýmsum hætti. Við síendurteknar auglýsingar á áfengi myndast ákveðin jákvæð viðhorf til áfengis. Um leið aukast líkurnar á að áfengisneysla aukist.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að þetta frumvarp sé bara upphafið að því að hér verði (Forseti hringir.) flutt frumvarp um að leyfa áfengisauglýsingar.