149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:02]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna.

Opnað er á ákveðna tegund af kynningu á áfengi í frumvarpinu. Það tengist náttúrlega því að einkaaðilar sem væru með þessa vöru í sölu þurfa á einhvern máta að geta haldið henni á lofti. Ég endurtek enn og aftur: Það er auðvitað tilvonandi hagnaður sem stýrir fyrst og fremst áhuga verslunarinnar á þessu. Hvort þetta leiði svo til þess að það yrði svo sem rýmkað hægt og rólega, þ.e. leyfi til áfengisauglýsinga, því get ég ekki svarað. Jú, það gæti mjög vel verið eftir því sem versluninni vindur fram.

Maður getur líka spurt sig með innfluttu tímaritin sem eru með þessum auglýsingum í. Hafa þau eitthvert gildi í þessu? Ég get ekki svarað því almennilega heldur. (Forseti hringir.) En ég deili áhyggjum hv. þingmannsins af áfengisauglýsingum yfir höfuð.