149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:04]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er nú svo að mörg lönd hafa með ýmsum hætti bannað áfengisauglýsingar. Þessar auglýsingar hafa áhrif, sérstaklega á ungt fólk. Ég nefni bjórauglýsingar sem dæmi í tengslum við ýmsa íþróttakappleiki, fótboltaleiki o.s.frv. Þetta hefur allt sín áhrif og stuðlar að því að auka áhuga fólks á þessari vöru, sem er eins og við þekkjum skaðleg á mörgum sviðum, sé ekki rétt með hana farið.

En ég held einmitt, eins og hv. þingmaður nefndi, að verið sé að opna fyrir auglýsingar. Þetta segir manni að verið er að ganga erinda ákveðinna aðila í samfélaginu, verslunarinnar og heildsala. (Forseti hringir.) Það er alltaf tekið skref af skrefi í að ganga lengra og ég óttast mjög að næst verði það þá áfengisauglýsingar.

(Forseti (ÞorS): Enn minnir forseti á ræðutímann.)