verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Já, við hv. þingmaður erum þá sammála um að halda verði auglýsingum í skefjum með einhverjum hætti í þessu markmiði.
En mig langar að minna á að með fræðslu og forvörnum hefur tekist að minnka áfengisneyslu í ákveðnum bekkjum skóla með samræmdu átaki sem kennt er við Ísland og stundum kallað á ensku „Planet Youth“. Það er hægt að ná árangri í þessu starfi ef það er unnið á réttan hátt.
Ég vil að lokum minna á að við þekkjum öll fólk með áfengisvandamál og við vitum fullvel hvað hefur farið í súginn í gegnum tíðina af mannauði þegar kemur að þessari tilteknu vöru. Ég held að við ættum öll, (Forseti hringir.) í staðinn fyrir að leggja fram svona frumvarp, að sameinast um að vinna gegn því böli.