149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:23]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, nú eru menn sem sagt að biðja mig um resept. Það er fínt.

Þær rannsóknir sem mér er kunnugt um og hafa verið gerðar á þessu sýna — ég skal ekki segja um eitt hvítvínsglas á kvöldi versus ein vodkaflaska á viku eða einu sinni í viku — allar rannsóknir á heilsufarslegum áhrifum benda til þess að dagleg drykkja, þótt lítil sé, sé skaðlegri í heilsufarslegu tilliti en lotudrykkja. Lotudrykkjan, eins og okkur er öllum kunnugt um, hefur í félagslegu tilliti tilhneigingu til að verða miklu meira vandamál og skelfilegri. Ef maður horfir þröngt á heilsufarslega og líkamlega ávinninginn eða ekki ávinninginn, þá er betra að drekka öll rauðvínsglösin á einu kvöldi.