verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Ég hef skoðað hvaða áhrif forvarnir hafa. Þær hafa margfalt meiri áhrif á neyslu en nokkurn tímann aðgengi samkvæmt þeim gögnum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lagt fram og ég hef farið ofan í þau og skoðað þau. Mér sýnist að með þessu frumvarpi sé fimmfaldað það framlag sem fer af áfengisgjaldinu til forvarna og meðferðarúrræða til að varna því annars vegar að fólk neyti áfengis, sérstaklega á þessum viðkvæma aldri, og hins vegar að grípa inn í þegar fólk kann ekki að fóta sig í sinni neyslu. Þetta eru einmitt þeir einstaklingar sem við þurfum að grípa. Mér sýnist að heildaráhrifin af frumvarpinu séu jákvæð, af því að það er þessi mikla aukning af áfengisgjaldi sem rennur til þeirra sem mest þurfa á því að halda.
Getur þingmaðurinn séð það fyrir sér að þótt aðgengi aukist eitthvað smávægilega þá færi maður á einhverjum tímapunkti mun meira af áfengisgjaldinu í forvarnir, í meðferðarúrræði, sem fólk, sem kæmi annars að lokuðum dyrum, gæti nýtt sér? Þá er verið að gera betur. (Forseti hringir.) Væri ekki hægt að breyta frumvarpinu bara í nefndinni hvað þetta varðar?