149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:41]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að ef við eigum að gera einhverja tilraun í þessu þá ætti hún einmitt að vera sú að ákveða að auka eða hækka einhliða áfengisgjaldið. (Gripið fram í.) Það myndi þá líka hafa þau jákvæðu áhrif að verð á áfengi myndi hækka, sem líklega myndi minnka neysluna. Það væri út af fyrir sig ágætt.

Ég held að heildaráhrif frumvarpsins séu því marki brennd að um leið og þessi hækkun áfengisgjalds sem hv. þingmaður nefnir er sett fram, verður líka bætt aðgengi og líka veitt heimild til auglýsinga. Ég held að af öllu þessu myndu endanlegu áhrifin verða þau að neyslan myndi aukast eins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur bent á, sem aftur myndi leiða til aukinna vandamála.