149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:53]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Það er bara aldrei aukið í lýðheilsuna. Áfengisgjaldið hefur verið 1%. Hérna er aftur á móti komið frumvarp þar sem segir: Hækkum það um 5%. Hvers vegna ekki, ef það eru vandkvæðin sem hv. þingmaður bendir á, að minnka þetta úr 22 tímum, lækka það í nefndinni? Notið þetta sem trójuhest til að fá aukið fjármagn í lýðheilsu. Á endanum muntu fá Sjálfstæðismenn og Viðreisn til að greiða atkvæði með frumvarpinu af því að það er ákveðið aukið viðskiptafrelsi í því. Notið tækifæri til að fá þetta fram. Takið áfengisauglýsingarnar út, minnkið tímann sem er þarna þannig að hann sé í samræmi við það sem hann er núna. Það eina sem við græðum á því að hækka áfengisgjaldið, þennan skatt á okkar veikasta fólk, til að þjóna því sama veikasta fólki, er smá aukið viðskiptafrelsi til Viðreisnar og Sjálfstæðisflokksins.