verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Forseti. Samkvæmt þeim tölum sem við höfum þá er það klárlega þannig að ef aðgengi er aukið þá eykst neyslan. Við vitum líka eftir stærstu samanburðarrannsókn sem gerð hefur verið og kom út á síðasta ári að jafnvel smávægileg áfengisneysla er skaðleg. Það er skaði þar. En mestur skaðinn er hjá þeim sem komast ekki í meðferð, mestur skaðinn er hjá þeim sem fá ekki þann aðbúnað sem þeir þurfa og fjölskyldur þeirra fá ekki þann aðbúnað sem þær þurfa vegna þeirra sem kunna ekki að fara með áfengi.
Það sem lagt er til í frumvarpinu er að fimmfalda hlutfallið af skattinum sem er tekinn af þessu fólki til að hjálpa því. Það er þess vegna sem ég tel að heildaráhrifin muni verða jákvæð. Já, það verður smáskaði hjá þeim sem neyta áfengis örlítið meira á hverjum degi, en það verður miklu minni skaða hjá þeim sem fóta sig ekki og fjölskyldum þeirra. Þetta er tækifæri sem við höfum núna. Sendum þetta í nefnd, fáum upplýsingar um hversu skaðleg áhrif þessi smávægilega aukna neysla hjá flestum, skilurðu, muni (Forseti hringir.) hefur á móti þessari (Forseti hringir.) miklu skaðaminnkun sem auknar forvarnir og meðferðarúrræði munu þýða. (Gripið fram í: … leggur þú ekki bara …)
(Forseti (ÞorS): Forseti ítrekar það að menn beini orðum sínum til forseta.)