verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegur forseti. Það hefur verið farið yfir ýmislegt í ræðum og andsvörum. Hv. þingmanni er tíðrætt um hækkun á áfengisgjaldi og auðvitað eru í frumvarpinu ákveðin atriði sem eru jákvæð fyrir þetta mál. Ég myndi taka söluna út fyrir en það er hækkun á áfengisgjaldi og þrenging á opnunartíma og annað slíkt.
Mig langar að tala um einn þátt sem hefur ekki verið komið inn á og það er aukin hætta á krabbameini hjá einstaklingum með aukinni áfengisneyslu. Við vitum að það verður aukning, eins og hv. þingmaður hefur komið inn á. Talað hefur verið um lýðheilsu en svo eru aðrar varnir, eins og t.d. krabbameinsmeðferðir og annað slíkt, áfengi hefur verið tengt við aukna áhættu að fá krabbamein í höfuð, háls, vélinda, maga, lifur, brjóst, eggjastokka, ristil og endaþarm. Þetta eru mjög íþyngjandi sjúkdómar allt saman og kosta samfélagið mikla peninga. Þarna eru kannski ekki þættir sem koma beint inn á lýðheilsusjóðinn heldur erum við meira að tala um forvarnir og horfa á unga fólkið okkar. En þessi stórneysluhópur er í meiri hættu á því að fá krabbamein. Þetta er oft fólk í mikilli neyslu sem er erfitt að ná í og ná til. Hvernig sér þingmaðurinn þetta gagnvart þeim hópi og þeim vanda?