149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[21:13]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vildi kannski fyrst og fremst koma inn á aðgengið og að áfengisneysla hefði aukist verulega á síðustu misserum með opnun veitingahúsa víða og ég var að reyna að tengja það við skipulagsvald sveitarfélaganna. Ég hefði gjarnan viljað að sveitarfélögin hefðu meira skipulagsvald þegar kemur að þessu, þau gætu t.d. ákveðið að það ætti enginn vínveitingastaður að vera í þeirra sveitarfélagi eða engin áfengisútsala, ef það væri stefna viðkomandi sveitarfélags, þau hefðu meira frelsi í þeim efnum.

En það er annað sem mig langar að nota tímann og koma inn á, nokkuð sem ég hef í raun miklu meiri áhyggjur af en auglýsingar og annað sem nefnt er í frumvarpinu. Það eru óbeinar auglýsingar og ákveðin normalísering á áfengisneyslu og ekki síður fíkniefnaneyslu, sem á sér stað t.d. í gegnum kvikmyndir og alls konar þætti og annað sem við sjáum, þar sem það virðist bara vera mjög eðlilegt að fólk fái sér í glas á hverjum degi eftir vinnu eða jafnvel (Forseti hringir.) enn frekar að það reyki maríjúana eða neyti annarra fíkniefna. Og það er, virðulegur forseti, eitthvað sem ég held (Forseti hringir.) að við ættum að hafa miklu meiri áhyggjur af hér í þessum sal en nákvæmlega því sem fjallað er um í þessu frumvarpi.