verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Eins og ég kom inn á áðan þá hafa sambærileg frumvörp á við þetta verið flutt áður nokkuð mörgum sinnum. Meginmarkmið frumvarpsins að þessu sinni er, með leyfi forseta, „að afnema einkaleyfi ríkisins á smásölu áfengis og að einkaaðilum verði heimiluð slík sala að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Frumvarpið gerir ráð fyrir að almennt verði heimilt að selja áfengi í smásölu í sérverslunum með mat- og drykkjarvörur en ekki stórmörkuðum og matvöruverslunum.“
Ef við hugsum okkur afleiðingarnar þá geta þær verið skelfilegar. Ég ætla að leyfa mér að nota það orð. Ég tel að ef þetta frumvarp verður samþykkt verði ekki langt í að næsta skref verði stigið í átt að frekara aðgengi. Áfengi er ekki venjuleg neysluvara og ef það verður sett í almenna sölu mun áfengisneysla aukast til muna hér á landi. Það að setja áfengisfrumvarpið í þann búning sem nú er gert með því að aðeins sé verið að huga að því að áfengi verði selt í smásölu og þá verði engin áhrif er mjög varhugavert.
Ef frumvarpið nær fram að ganga verða afleiðingarnar aukinn vandi og þar með kostnaður fyrir samfélagið. Ég sé heldur ekki hvernig það á að vera réttlætanlegt að selja áfengi í smásölu eins og það kallast. Viðskiptafrelsi á ekki við þegar við ræðum um sölu á áfengi. Núverandi stefna okkar og fyrirkomulag um aðgengi að áfengi hefur þrátt fyrir allt borið góðan árangur. Allar rannsóknir sýna það og fyrirkomulagið eins og það er núna er því ásættanlegt. Það er fráleitt að stíga það skref sem hér er boðað um að ganga lengra þótt því sé haldið fram að það muni engin áhrif hafa, sem er í sjálfu sér sérstakt þar sem það er einnig boðað í greinargerð með frumvarpinu, með tilmælum, að auka eigi fjármagn í lýðheilsusjóð. Það eitt hlýtur að vera vegna þess að flutningsmenn telja áhrifin þó nokkur.
Það er með sanni hægt að segja að áfengisneysla er einn af stærstu áhættuþáttum lýðheilsu og getur haft áhrif til skaða í samfélaginu og valdið miklu félagslegu og efnahagslegu tjóni. Okkur ber því að draga úr eða lágmarka neyslu áfengis og ef við höldum því áfram erum við í sjálfu sér að styðja heilsu einstaklinga sem og hag fjölskyldna.
Það er sannað með rannsóknum að mikil tengsl eru á milli aðgengis að áfengi og neyslu, þ.e. aukið framboð leiðir til aukinnar neyslu. Eins og við höfum haft það í dag, að takmarka sölu við sérstakar áfengisverslanir, er það ríkur þáttur í forvörnum og að halda fast í einkasölu ríkisins kostar minna samanborið við þann kostnað sem mun hljótast af, verði sala áfengis gefin frjáls.
Það er einnig áhugavert að velta því fyrir sér fyrir hvern og af hverju það er svona mikilvægt að opna fyrir sölu áfengis í smásölu. Af hverju þarf að stíga þetta skref? Fyrirkomulagið, eins og ég hef sagt áður, hefur virkað vel. Áfengisneysla hér á landi er með því minnsta sem þekkist þó að hún hafi aukist undanfarin ár. Nýverið birtust fréttir um, og við megum ekki gleyma því, að unglingar byrja oft sína neyslu á áfengi og getur haldið áfram út í eitthvað sem okkur finnst ekki nógu gott. Takmörkun á aðgengi hér hefur vakið athygli úti í hinum stóra heimi og aðgangsstýringin er því góð og við ætlum ekki að auka þann kostnað sem samfélagið ber. Nægur er hann nú þegar. Það er sérstakt að fólk fjalli um áfengi eins og einhver grunngæði, að það þurfi að tryggja öllum aðgang á öllum tímum.
Í greinargerð sem fylgir frumvarpinu segir, með leyfi forseta:
„Til að sporna gegn óhóflegri neyslu áfengis er mikilvægt að fræðsla, forvarnastarf og meðferðarúrræði verði markvisst efld bæði faglega og fjárhagslega. Við fyrri framlagningar frumvarpsins var lögð til sú breyting að í stað þess að 1% af áfengisgjaldi rynni í lýðheilsusjóð yrði hlutfallið hækkað í 5%.“
Við framlagningu þessa frumvarps leggja flutningsmenn til að framlög á fjárlögum til lýðheilsusjóðs verði stórlega aukin einmitt til þess að efla fræðslu og meðferðarúrræði og til að sporna í meira mæli en nú er gert við skaðlegri, óhóflegri áfengisdrykkju. Aukna fjármuni beri jafnframt að nýta til rannsókna á áfengisneyslu þjóðarinnar.
Ég veit ekki betur en að sífellt sé verið að kalla eftir auknum fjármunum til forvarna og meðferðarúrræða og það er á meðan við erum með aðgangsstýringu eins og þessu er háttað hjá okkur núna. Ég get fallist á að auka eigi framlög í lýðheilsusjóð, enda ærið tilefni. Að það hangi saman við það að auka aðgengi að áfengi get ég alls ekki skilið.