verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Hér kemur enn ein ræðan um nákvæmlega það sama. (Gripið fram í.) Hér fullyrða menn alltaf að ef frelsi eykst, ef einhver annar fær að selja áfengi en ríkið, fari allt á hliðina, fari allt til fjandans í samfélaginu. Samt horfum við á öll löndin í kringum okkur þar sem áfengi er bara á næsta horni og í matvörubúðum. Þessar þjóðir lifa ágætlega (Gripið fram í: Þær lifa styttra.) — og það er líka allt í lagi, það sparar lífeyrisgreiðslur.
Ég er búinn að hlusta á þessa umræðu í áratugi. Við leyfðum bjórinn, þá átti allt samfélagið að fara til andskotans. Við höfum fjölgað verslunum mikið. Það eina sem ég sé, og ég er búinn að lifa báða tímana og meira að segja hér í borginni, er að drykkjumenning þjóðarinnar hefur batnað til mikilla muna. Ofdrykkja á almannafæri hefur alla vega minnkað mjög mikið. Þetta bara blasir við.
Ég get ekki séð að Þjóðverjar eða Hollendingar séu í meiri vandamálum en við. Það eru sérkennilegar fullyrðingar að allt fari til fjandans. Við höfum ekki neitt fyrir okkur í því. Þótt við leyfum einkaaðilum að eiga viðskipti með þessa vöru eins og aðra vöru sem er lögleg er ekki þar með sagt að aðgengi muni aukast. Aðgengi hefur aukist og aukist og því fleiri ferðamenn sem við fáum þeim mun meira aðgengi verður að áfengi, það verða fleiri veitingastaðir. Eigum við að banna ferðamönnum að koma? Þessi umræða er algerlega gagnslaus. Leyfum bara fólki að bera ábyrgð á sjálfu sér og drekka sitt áfengi þegar því sýnist og sækja það þangað sem það vill sækja það.