149. löggjafarþing — 81. fundur,  20. mars 2019.

störf þingsins.

[15:01]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Alþjóðahamingjudagurinn er í dag. Árið 2015 settu Sameinuðu þjóðirnar fram 17 heimsmarkmið til að binda enda á fátækt, draga úr ójafnrétti, vernda jörðina en þetta þrennt tengist vellíðan og hamingju órjúfanlegum böndum. Til hamingju með daginn. En ég er því miður ekki hamingjusamur á þessu augnabliki. Ég er því miður enn og aftur í fýlu út í núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnir, sérstaklega núverandi sem enn og aftur ræðst á öryrkja, veikt og slasað fólk.

Íbúðalánasjóður hefur hafnað umsókn Brynju hússjóðs ÖBÍ um stofnframlög til að kaupa íbúðir fyrir öryrkja. 600 manns eru á biðlista hjá Brynju eftir húsnæði. Brynja sótti um stofnframlög vegna 135 íbúða með það að markmiði að fjölga íbúðum fyrir öryrkja. Um var að ræða 110 tveggja herbergja íbúðir, 24 þriggja herbergja íbúðir og eina fjögurra herbergja íbúð. Hæstv. félags- og barnamálaráðherra Ásmundur Einar Daðason breytti hins vegar reglugerð um veitingu stofnstyrkja 5. desember sl. Þar kemur fram að a.m.k. 2/3 hlutar fjármagns eigi að renna til íbúða sem ætlaðar eru tekju- og eignalitlum eigendum á vinnumarkaði.

Það á ekki að binda enda á fátækt, draga úr ójafnrétti eins og Sameinuðu þjóðirnar segja í dag. Nei, skilaboðin frá þessari ríkisstjórn eru skýr. Ef öryrkjar samþykkja ekki starfsgetumatið fá þeir ekki fleiri íbúðir, ekki leiðréttingu lífeyrislauna aftur í tímann eins og allir aðrir hafa fengið, ekki krónu á móti krónu burt. Við höldum áfram að skerða séreignarsparnað, dánarbætur, mæðra- og feðralaun, sjúkrabætur, lífeyrissjóðslaun til áframhaldandi sárrar fátæktar. Traustið er farið, öryrkjar treysta ekki núverandi ríkisstjórn. Eruð þið svo hissa á því að við öryrkjar séum ekki að springa úr hamingju á þessum alþjóðlega degi hamingjunnar?