149. löggjafarþing — 81. fundur,  20. mars 2019.

störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég ætla að gera að umtalsefni mínu í dag stöðu sjúkraflutninga almennt og sérstaklega á Suðurlandi. Aðalstarfsstöð sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er á Selfossi. Starfsstöðvarnar eru fimm og sinna gríðarlega stóru landsvæði sem er um 30.000 km² og nær allt frá Hellisheiði í vestri að Höfn í Hornafirði í austri. Stofnunin hefur til umráða tíu sjúkrabíla sem staðsettir eru á Selfossi, í Rangárþingi, á Vík, Klaustri og í Vestmannaeyjum. Auk þess að sinna íbúum Suðurlands hefur ferðamannastraumur um Suðurlandið aukist mjög, auk þess sem stór sumarhúsabyggð er á landsvæðinu.

Á síðustu fimm árum hefur sjúkraflutningum á svæðinu fjölgað um 40%. Á árinu 2018 fóru sjúkraflutningamenn á Suðurlandi í tæplega 4.100 sjúkraflutninga, þar af 1.714 forgangsútköll. Nú nýverið var ákveðið af sparnaðarástæðum að fara í breytingar á mönnun í sjúkraflutningum þar sem sólarhringsvakt breyttist í bakvaktir sjúkraflutningamanna á nóttunni í Rangárþingi. Það vita allir sem búið hafa við bakvaktir að viðbragðið er seinna á ferðinni og leiðir til skerðingar á þjónustu og þar að auki er 24 tíma vakt á Hvolsvelli gríðarmikill stuðningur fyrir starfsstöðvarnar fyrir austan Hvolsvöll þar sem mörg alvarleg slys hafa orðið að undanförnu.

Það er einnig staðreynd að engin sjúkrabifreið í fyrstu útkallslínu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er ekin undir 200.000 km. Einhverjir bílar eru eknir á fjórða hundrað þúsund kílómetra svo ástandið er orðið vægast sagt alvarlegt.

Herra forseti. Í þessu ljósi er alvarlegt að enn hefur útboði vegna fyrirhugaðra kaupa á sjúkrabifreiðum verið frestað. Frestur átti að vera til 7. febrúar en því var frestað til 13. mars. Nú hefur því verið frestað fram á haustið.

Herra forseti. Ég tel nauðsynlegt að við styðjum miklu betur við heilbrigðisstofnanir úti á landi.