149. löggjafarþing — 81. fundur,  20. mars 2019.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu.

688. mál
[17:28]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Við ræðum hér skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu sem óskað var eftir að frumkvæði hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur. Eins og kemur fram í greinargerð skýrslubeiðninnar má segja að hún hafi verið ákveðið viðbragð við því sem kom fram í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV 21. nóvember 2017 en þar komu fram ábendingar um að Fiskistofu tækist ekki að uppfylla skyldur sínar lögum samkvæmt. Skýrslan hefur verið rædd bæði í atvinnuveganefnd og auðvitað stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, eins og hefur komið fram hér í umræðunum, en það er mjög mikilvægt að við í þingsal ræðum einnig skýrsluna því að hún er ekki einungis áfellisdómur yfir eftirliti Fiskistofu, heldur einnig yfir stjórnvöldum og hvernig hefur verið staðið að umgjörð eftirlitsins.

Með leyfi forseta segir í niðurstöðum skýrslu Ríkisendurskoðunar:

„Sjávarútvegur er einn veigamesti og arðbærasti atvinnuvegur landsins og standa ríkir almannahagsmunir til þess að eftirlit með umgengni og nýtingu sjávarauðlindarinnar sé traust og í samræmi við lög.“

Ég held að við getum öll verið sammála um þetta og því eru það vonbrigði að niðurstöður skýrslunnar sýna svo ekki verður um villst að eftirlit Fiskistofu með vigtun, brottkasti og samþjöppun aflaheimilda virkar ekki sem skyldi og styður ekki með viðunandi hætti við markmið laga um stjórn fiskveiða og laga um umgengni um nytjastofna sjávar. Þetta staðfestir að skýrslubeiðnin var nauðsynleg.

Skýrslan er áfellisdómur yfir stjórnsýslu atvinnuvegaráðuneytis og eftirliti Fiskistofu með vigtun sjávarafla og brottkasti, en að auki má þar finna skýrar ábendingar til Alþingis um að þörf sé á endurskoðun á 13. og 14. gr. laga um stjórn fiskveiða hvað varðar bæði yfirráð og tengsl aðila. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur í því samhengi fram að mikilvægt sé að yfirráð tengdra aðila yfir aflaheimildum séu skoðuð með reglubundnum og markvissum hætti og vil ég taka undir það.

Herra forseti. Eitt af því sem kom í ljós eftir efnahagshrunið 2008 var að eftirlitsstofnanir voru of veikar og höfðu ekki afl til að bregðast við. Raunar gengu menn svo langt að segja að eftirlit hins opinbera hefði einfaldlega brugðist og hefði eftirlitið verið betra hefði hrunið mögulega orðið minna að umfangi. Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis frá vorinu 2010 var ein meginniðurstaðan að skortur á eftirliti með framkvæmd laga og reglna á fjármálamarkaði hafi verið meðal orsaka þess að hrun bankanna átti sér stað. Þannig hafi Fjármálaeftirlitið, sem bar meginábyrgð á eftirliti með bönkunum, ekki vaxið í samræmi við vöxt bankanna og starfshættir ekki fylgt eftir þeim breytingum sem urðu á starfsháttum bankanna.

Rannsóknarnefndin bendir einnig á í skýrslu sinni að ef litið er til reksturs Fjármálaeftirlitsins og ráðstöfunarfjár þess fram til 2006 er ljóst að hafist var of seint handa við að auka fjárveitingar Fjármálaeftirlitsins til að auka getu þess til að fylgja eftir hröðum vexti íslenska fjármálakerfisins, flóknari eignatengslum á fjármálamarkaði og auknum umsvifum eftirlitsskyldra aðila erlendis.

En af hverju er ég að rifja þetta upp hér og nú, herra forseti? Jú, eftir lestur þessarar skýrslu Ríkisendurskoðunar kemst ég ekki hjá því að sjá sambærilegt mynstur hér og velta fyrir mér hvort það sé mögulega ætlunin að gera sömu mistökin tvisvar. Það er augljóst að ekki hefur verið gætt að því að efla Fiskistofu í samræmi við þær breytingar sem hafa orðið á sjávarútveginum á síðustu árum og áratugum. Ég dreg hreinlega í efa að það hafi verið raunverulegur pólitískur vilji til að Fiskistofa yrði nokkurn tíma öflug eftirlitsstofnun og frekar verið dregið úr henni en hitt. Þessi skortur á pólitískum vilja birtist bæði í því að ekki hefur verið gengið í að breyta löggjöf eins og þörf er á og hefur verið bent á og að fjármögnun stofnunarinnar dugar ekki til að hún geti sinnt því hlutverki sem hún á að sinna. Þetta veldur því að stofnunin er sífellt að bregðast við vandamálum sem koma upp í stað þess að geta unnið undirbúningsvinnu sem getur komið í veg fyrir að vandamálin komi upp. Það má kannski líkja ástandinu við heimili með fimm börnum og að aðeins náist að skipta um bleiur og gefa að borða, en illa gengur að halda hreinu af því að ryksugan er biluð og ekki vilji til að laga hana. Og auðvitað er enginn tími til að senda börnin í fiðlutíma eða íþróttir eða einhvern svoleiðis lúxus.

Herra forseti. Það kvikna mörg rauð ljós við lestur þessarar skýrslu. Samþjöppun aflaheimilda á fárra hendur er eitt þeirra. Annað er eftirlit með vigtun á hafnarvog, en þar eru sögð dæmi um að vigtarmenn hafi ekki tök á, vegna starfsaðstæðna, að gaumgæfa samsetningu og íshlutfall þess afla sem veginn er, auk þess sem vigtarmenn séu oft tengdir viðskiptavinum hafnanna fjölskyldu- eða vinaböndum, einkum í smærri sveitarfélögum.

Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar benda upplýsingar þeirra til að framkvæmd vigtunar sé misjöfn og ekki ávallt í samræmi við lög og fyrirmæli stjórnvalda og raunar má segja að eftirlit með vigtun sé ófullnægjandi. Má efast um að það skili tilætluðum árangri þar sem það sé bæði veikburða og ómarkvisst. Við þetta bætist svo eftirlit með þeim sem hafa endurvigtunarleyfi eða heimavigtunarleyfi. Það er mikið traust sem við veitum aðilum með slík leyfi og eins og komið hefur fram nær Fiskistofa ekki að hafa eftirlit með nema brotabroti af þeim vigtunum sem eiga sér stað. Við treystum því að aðilar geri sitt besta í hinum tilfellunum.

Upplýsingar um afla og aflasamsetningu eru mikilvægasta forsendan sem stuðst er við þegar lagt er mat á stofna og afrakstursgetu þeirra. Rangar eða ónákvæmar upplýsingar um afla leiða óhjákvæmilega til ónákvæmni í útreikningi varðandi ástand fiskstofna og þar með eykst hættan á að of nærri þeim verði gengið og við eigum því mikið undir því að réttar upplýsingar skili sér.

Herra forseti. Þetta er að mörgu leyti snúið viðfangsefni enda oft miklir hagsmunir í húfi eins og kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Að auki hafa stjórnendur Fiskistofu ítrekað bent á að þau telji stofnunina vera undirmannaða, og hafa verið það miðað við fjölda og umfang eftirlitsverkefna, auk þess sem ómögulegt sé að sinna öllu því eftirliti sem henni ber að sinna, m.a. vegna skorts á úrræðum og viðurlögum.

Hæstv. sjávarútvegsráðherra kom nýlega inn á það í andsvari við hv. þm. Oddnýju Harðardóttur, sem hann sagði til skemmtunar fyrir þingheim, að hann teldi hið merkilega og góða myndavélafrumvarp og nýja tækni og nýja þekkingu koma inn í það að bæta eftirlitið. Ég sá reyndar ekkert sérstaklega skemmtilegt við þá umræðu, en er samt sem áður sammála hæstv. ráðherra um mikilvægi slíkrar þróunar. Ég hvet hann eindregið til að koma með myndavélafrumvarpið inn í þingið hið fyrsta svo hægt sé að fá tæknina í lið með okkur sem allra fyrst. Ég minni þó á að slíku fylgir einnig kostnaður sem þarf að gera ráð fyrir og að rafrænn búnaður kemur ekki í veg fyrir þörf á mannlegri aðkomu. Það má ekki túlka það sem svo að hægt sé að fækka eftirlitsmönnum ef taka á upp rafrænt eftirlit, heldur kemur það aðeins til viðbótar.

Herra forseti. Ég vil í þessu samhengi minna á að Fiskistofu er ætlað nokkurt hlutverk í nýrri fiskeldislöggjöf og lýsi áhyggjum af því hvernig stofnuninni er ætlað að sinna því aukna hlutverki ef ekki kemur til umtalsverð aukning í framlögum til stofnunarinnar í fjármálaáætlun þeirri sem verður lögð fram í næstu viku.

Herra forseti. Þessi skýrsla er áfellisdómur yfir stjórnsýslunni og ekki síst framkvæmdarvaldinu. Þingið getur þó ekki firrt sig ábyrgð enda ljóst að að hluta til snýr vandinn að því að heimildir Fiskistofu eru ekki nægar í lögum, auk þess sem bæta þarf fjármögnun stofnunarinnar. Við þingmenn þurfum því að spyrja okkur hvað við getum gert til að bæta umhverfi Fiskistofu og gera starfsfólki stofnunarinnar kleift að sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin, bæði þegar kemur að fjármagni en ekki síður gagnvart lagarammanum sem því miður virðist vera ófullnægjandi og eins og hefur komið fram í umræðunni virðist einhverra hluta vegna hafa verið mjög erfitt að breyta því. Virðist þar fyrst og fremst hafa skort á pólitískan vilja fyrrverandi ráðherra og vísa ég þar til skýrslu Ríkisendurskoðunar um lagafrumvörp sem til urðu en hlutu engan framgang hjá pólitíkinni.

Vilji hæstv. sjávarútvegsráðherra til breytinga fyrir útgerðina virðist hins vegar vera til staðar og ég vona að vilji hans til þessara breytinga, þ.e. til styrkingar á eftirliti Fiskistofu og heimilda hennar, verði jafn mikill og hann hefur verið til að breyta fyrir útgerðina. Ég vona að starfshópurinn sem hæstv. ráðherra hefur skipað muni vinna hratt og örugglega og skila tillögum til þingsins hið fyrsta. Ef ekki þá treysti ég því að þingheimur taki það verkefni upp sjálfur að endurskoða ákvæði 13. og 14. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og e.t.v. í ljósi umræðunnar hér áðan ættum við að gera það strax og þá a.m.k. sérstaklega hvað varðar fjármögnun.

Herra forseti. Við erum lánsöm að í íslenskum sjávarútvegi eru sterkir aðilar og við getum stært okkur af því að vera á meðal fremstu þjóða. En til að hafa eftirlit með sterkum aðilum þarf líka sterka stofnun og þar liggja hagsmunir Íslendinga allra.