skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu.
Herra forseti. Við ræðum skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit með sjávarauðlindinni og eftirlit með Fiskistofu. Einnig liggur fyrir til umræðu álit hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um sömu skýrslu.
Öllum er ljóst að sjávarútvegurinn hefur verið veigamesti og arðbærasti atvinnuvegur landsins og hann er enn afskaplega mikilvægur fyrir þjóðarbúið í heild. Það er því mikilvægt að svo sé búið um hnútana að þeir sem stunda þann atvinnuveg bæði gangi vel um auðlindina og greiði þau gjöld til samfélagsins sem þeim ber. Það liggur í hlutarins eðli vegna þess hvernig björg er sótt í greipar ægis, komið með hana að landi og til frekari vinnslu og útflutnings, að fjölmargir snertipunktar skapast í öllu því ferli þar sem skussum, eins og hæstv. ráðherra nefndi þá, býðst að sniðganga reglur og eftirlit. Það sem Fiskistofa hefur með hendi er auðvitað einn mikilvægasti liðurinn í framkvæmd þeirrar stefnu sem stjórnvöld marka varðandi það að nýting auðlindarinnar takist eins vel og til er ætlast.
Ég ætla að nota tíma minn mest til að fara yfir skýrsluna í örstuttu máli. Helstu vandamálin eru talin vera ólöglegt brottkast, slakt eftirlit með vigtun afla, þ.e. löndun fram hjá vigt, og slakt eftirlit með samþjöppun aflaheimilda, þeir þrír liðir. Ríkisendurskoðun hefur metið framkvæmd vigtunar á hafnarvog misjafna og eftirlit Fiskistofu með vigtun almennt takmarkað og óskilvirkt og að fyrirkomulag vigtunar bjóði upp á umtalsverð frávik í skráningu. Ríkisendurskoðun efast um að eftirlitið skili tilætluðum árangri.
Ríkisendurskoðun telur einnig að eftirlit með brottkasti sé takmarkað, veikburða og ómarkvisst. Stór þáttur í þeim veikleikum er fjöldi þeirra báta sem hafa veiðileyfi. Vísbendingar eru um að brottkast sé töluvert og þær ber að taka alvarlega. Þá er það sérstakt vandamál að meta árangur af eftirliti með brottkasti og skortir á árangursviðmið og mælikvarða.
Varðandi þriðja atriðið, eftirlit með yfirráðum yfir aflahlutdeildum, finnur Ríkisendurskoðun einnig að eftirliti Fiskistofu með yfirráðum einstakra eða tengdra aðila yfir aflahlutdeildum og ekki verður séð að það eftirlit sé framkvæmt með markvissum hætti heldur treysti Fiskistofa í grunninn nánast alfarið á tilkynningarskyldu aflahlutdeilda.
Í það heila má segja að skýrsla Ríkisendurskoðunar sé stór áfellisdómur yfir eftirliti með sjávarauðlindinni. Í heildina tekið er það niðurstaða ríkisendurskoðanda að eftirlit Fiskistofu styðji ekki með viðunandi hætti, eins og það er orðað, við markmið laga um stjórn fiskveiða og umgengni um nytjastofna sjávar. Þó er viðurkennt að eftirlitið sé erfitt í framkvæmd og snúi að starfsemi þar sem miklir hagsmunir séu í húfi.
Fiskistofa telur stofnunina vera undirmannaða miðað við þau verkefni sem henni er ætlað að sinna. Þá telur stofnunin lagaumhverfið að mörgu leyti óskýrt og vöntun á einstökum heimildum til aðgerða. Einnig skorti stofuna þekkingu á nýjustu upplýsingum um bein og óbein tengsl í fyrirtækjaumhverfi sjávarútvegs. Tiltekið er í skýrslunni að sönnun í mörgum tegundum mála hafi reynst erfið þar sem brotin eiga sér stað á hafi úti.
Herra forseti. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að eftirliti Fiskistofu sé ábótavant á margvíslegan hátt. Þeir þættir eftirlitsins sem skoðaðir voru töldust ómarkvissir og veikburða og hefur Fiskistofa tekið undir það mat. Fiskistofustjóri er sagður hafa lýst því yfir að mikið skorti á að eftirlit stofnunarinnar sé nægjanlegt.
Herra forseti. Hvað er til ráða? Í fyrsta lagi er algerlega kýrskýrt að núverandi ástand gengur ekki. Færa þarf eftirlitsaðilum, hverjir sem þeir kunna að vera, þau verkfæri sem duga svo að umgengni við sjávarauðlindina sé á þann hátt sem við helst viljum, umhverfisvæn, sjálfbær og að af veiðum séu greidd þau gjöld sem mönnum ber. Taka þarf afstöðu til þess hvort fjölgun eftirlitsmanna sé einhver lausn en hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd telur að styrkja þurfi eftirlit Fiskistofu og nefnir þar rafrænt eftirlit, en með því væri ekki þörf á jafn mörgum eftirlitsmönnum.
Tölulegar upplýsingar um vigtun á rauntíma til Fiskistofu væru vissulega mikið framfaraskref sem gæti eitt og sér stóreflt skilvirkni. Hins vegar set ég stórt spurningarmerki við notkun svokallaðra dróna við eftirlitsstörf. Þar þyrfti vissulega fyrst að komast yfir nokkra múra persónuverndar.
Aukið samstarf milli Fiskistofu og Landhelgisgæslunnar er líka nauðsynlegt og væri þar unnt að ná miklum árangri. En þá þarf auðvitað að leysa Landhelgisgæsluna úr viðjum niðurskurðar margra umliðinna ára. Landhelgisgæslan hefur verið stolt okkar og prýði á síðustu áratugum.
Stungið er upp á því að herða refsingar og viðurlög við brotum. Við það set ég spurningarmerki. Ég tel að við þurfum fyrst að fjölga úrræðum eftirlitsaðila og einnig að skýra lagaumhverfið betur svo að unnt sé að ná lögum yfir þá sem t.d. stunda ólöglegt brottkast. Ég tel að vandamálið sé fremur sönnunarvandi en skortur á harðari refsingum í þeim málum, a.m.k. hvað varðar brottkast og löndun fram hjá vigt. Veiðileyfasvipting er í sjálfu sér hörð refsing og kemur fljótt til framkvæmda. Ofan á hana kemur síðan refsing fyrir dómi þegar málið fer þá leið.
Ég fagna því sérstaklega, eins og kemur fram í áliti hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að nú þegar sé hafin vinna hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu við að fara yfir skýrsluna. Kannski er viðbragða að vænta innan ekki svo langs tíma.
Að öðru leyti tek ég undir áhyggjur margra hér sem hafa tjáð sig um skýrsluna, sem er sannarlega áfellisdómur yfir eftirliti með sjávarauðlindinni. Fiskistofu hefur alls ekki verið gert kleift, hvorki ef horft er á lagaumhverfið, fjárveitingar til stofnunarinnar né stuðning við hana að öðru leyti, að hafa eftirlit með auðlindinni svo að fullnægjandi sé.