149. löggjafarþing — 81. fundur,  20. mars 2019.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu.

688. mál
[17:48]
Horfa

Einar Kárason (Sf):

Herra forseti. Ég ætla ekki að dvelja lengi í pontu og heldur ekki lesa í löngu máli upp úr þessari skýrslu, enda hefur það verið gert fyrr í dag. Ég verð samt að segja þar sem ég er mikill áhugamaður um sjávarútveg, sem hefur verið mikilvægasta atvinnugrein okkar a.m.k. síðustu 150 ár eða frá því að þilskipaútgerð var hafin á Íslandi og náttúrlega miklu lengur, og þar sem þetta snertir mikilvægustu auðlind okkar og sameiginlega eign, að mér brá dálítið við að lesa um allt það fúsk sem getið er um í skýrslunni.

Í áliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrsluna segir, með leyfi forseta:

„Ríkisendurskoðandi metur framkvæmd vigtunar á hafnarvog misjafna og ekki ávallt í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Eftirlit Fiskistofu með vigtun almennt sé takmarkað og óskilvirkt og fyrirkomulag vigtunar bjóði upp á umtalsverð frávik í skráningu.“

Hérna stendur líka: „Eftirlit með brottkasti er einnig afar takmarkað, veikburða og ómarkvisst.“

Og svo segir. „Að mati ríkisendurskoðanda styður eftirlit Fiskistofu með vigtun, brottkasti og samþjöppun aflaheimilda ekki með viðunandi hætti við markmið laga um stjórn fiskveiða og laga um umgengni um nytjastofna sjávar.“

Niðurstaðan er að eftirlit með nýtingu sjávarauðlindarinnar sé ófullnægjandi.

Þegar ég las þetta hvarflaði að mér að það væri í stíl við allt annað sem við höfum gert í sambandi við þessa mikilvægustu auðlind okkar og atvinnugrein. Þetta er ekkert nema fúsk, þ.e. við höfum ágætissjómenn og ágætisútgerðarmenn en allt regluverkið í kringum það, lagasetning, gjaldtaka o.s.frv., er nokkuð sem jafnvel misbýður siðferðiskennd venjulegs fólks.

Við vitum hvernig það er með úthlutun aflaheimilda. Farið var að veita einkaleyfi í einhverju stressi fyrir 20, 30, 40 árum. Menn sáu hvaða kosti það myndi hafa en sáu ekki fyrir gallana. Þeir hafa blasað við æ síðan en samt sem áður hefur aldrei tekist að vinda ofan af þeim eða setja nýjar reglur um það mál.

Við vitum öll að þeir sem hafa fengið einkaleyfi á auðlindinni selja hana í mörgum tilfellum áfram á tíföldu eða tuttuguföldu því verði sem þeir borga fyrir hana og það án þess yfirleitt að stunda sjóinn. Við vitum líka hvernig lögin hafa leikið sjávarbyggðir víða um landið. Eitt af því nýjasta sem ég hef heyrt er að mér var bent á um síðustu helgi í sambandi við þann lagaramma sem við höfum í kringum þetta að sú gjaldtaka sem nú er stunduð af afnotum af sjávarauðlindinni er miðuð við afkomu fyrirtækja, þ.e. því verri sem afkoman er þeim mun minna þurfa menn að borga. Þetta er í það minnsta ekki hvati til þess að reka fyrirtækin vel, þótt það sé gert í mörgum tilfellum, heldur geta menn með því að hlaða alls konar kostnaði á fyrirtækin sparað sér á móti greiðslu fyrir afnot af sjávarauðlindinni.

Við jafnaðarmenn höfum lengi sagt og barist fyrir því að þessar fiskveiðiheimildir verði á einhvern skynsamlegan hátt settar á uppboð, að við finnum skynsamlegt markaðsverð fyrir þær og þar með myndu koma peningar sem myndu leysa t.d. það mál sem við heyrðum sjávarútvegsráðherrann kveinka sér undan, að það væru engir peningar til að stunda þetta eftirlit. Með því að ganga skynsamlega og af sanngirni um auðlindina munu peningarnir skila sér. Því miður eru helstu íhaldsflokkar landsins nú við völd, þeir flokkar sem aldrei hafa mátt heyra minnst á að gripið sé til skynsamlegra ráðstafana til að leysa einn helsta vanda samfélags okkar.

Mér finnst þessi skýrsla eins og enn einn naglinn í þá kistu sem sökkvandi pólitík okkar í kringum útgerð og umgengni við fiskimiðin hefur verið.