skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu.
Hæstv. forseti. Hér er til umræðu skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu. Mig langar að nefna hér hlutverk Fiskistofu og vitna í heimasíðu stofnunarinnar, með leyfi forseta:
„Hlutverk Fiskistofu er að gæta hagsmuna þjóðarinnar við ábyrga nýtingu auðlinda hafs og vatna.“
Samkvæmt lögum hefur Fiskistofa mörgum hlutverkum að gegna. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar voru nokkur álitamál tíunduð og lausnir lagðar fram. Hér er verið að fjalla um þrjú aðskilin mál og velti ég því fyrir mér hvort ekki hefði verið full ástæða til að fjalla um þau þrjú mál hvert fyrir sig. Ég er þeirrar skoðunar að ekki sé heppilegt að blanda saman reglum og lögum um aflahlutdeildir, hvernig eða hvort farið er eftir þeim lögum annars vegar, og eftirliti með nýtingu sjávarafla og brottkasti hins vegar.
Ég velti fyrir mér hvort Fiskistofa geti sinnt báðum þessum liðum. Það er alveg á hreinu að stofnunin er fjársvelt. Og ef stofnunin er fjársvelt mun hún ekki geta sinnt hlutverki sínu. Það er afleitt að 13. og 14. gr. laga um fiskveiðar sé ekki framfylgt, en þau lög fjalla m.a. um að leyfa aflahlutdeild í heildarafla. Það er alveg ljóst hver vilji löggjafans var þegar lög um stjórn fiskveiða voru sett. Á þeim tíma kom fram skýr vilji um hversu mikið hvert fyrirtæki mætti hafa til ráðstöfunar úr sameign þjóðarinnar. Hluti skýrslunnar fjallaði um umgengni um nytjastofna, brottkast öðru nafni, og vigtun afla. Vigtun sjávarafla virðist ekki endurspegla það afurðamagn sem skilar sér út úr vinnslu. Þetta er almannarómur. Það er með einföldum hætti hægt að haga því þannig að ísprósenta sé hærri en hún er raunverulega og framhjálöndun eða önnur löndun sem skilar sér ekki í bókhald er einbeitt brot sem á að meðhöndla sem brot. Hins vegar er erfitt að segja til um umfang þessara brota.
Ég ætla að tæpa á nokkrum atriðum álits stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar, með leyfi forseta:
„Ríkisendurskoðandi metur framkvæmd vigtunar á hafnarvog misjafna og ekki ávallt í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Eftirlit Fiskistofu með vigtun almennt sé takmarkað og óskilvirkt og fyrirkomulag vigtunar bjóði upp á umtalsverð frávik í skráningu.“
Og áfram:
„Eftirlit með brottkasti er einnig afar takmarkað, veikburða og ómarkvisst. Þá er það ýmsum vandkvæðum bundið í ljósi fjölda íslenskra skipa og báta með veiðileyfi. Taka verði alvarlega áhyggjur og vísbendingar um brottkast.“
Eftirlit með brottkasti fer í dag fram á þann hátt að eftirlitsmenn Fiskistofu fara með fiskiskipum og fylgjast með störfum um borð. Eftirlitsmenn eru mislengi á hverju skipi. Einnig hafa verið gerðar kannanir meðal sjómanna þar sem þeir eru spurðir út í brottkast.
Kannski má bæta því við að svokallaður VS-afli eða VS-sjóður var á sínum tíma settur á, m.a. til þess að menn gætu komið með þann afla sem inn í skipið kemur, þó að hann sé kannski skemmdur eða ekki mikils virði eða eitthvað í þá áttina. Reglurnar eru þannig að 5% af lönduðum afla mega fara í þennan VS-sjóð. Þá fær ríkið 80% af verðmætinu og 20% fara til útgerðarinnar. Fyrst um sinn var þessi sjóður notaður til að reka skip Hafrannsóknastofnunar, en það hefur eitthvað breyst í áranna rás og reglugerðum verið breytt. Þetta virkaði mjög vel á sínum tíma en þyrfti endurskoðunar við.
En áfram, með leyfi forseta:
„Ríkisendurskoðandi bendir á að stjórnendur Fiskistofu telji að stofnunin sé og hafi verið undirmönnuð miðað við fjölda og umfang eftirlitsverkefna. Ómögulegt sé að sinna öllu því eftirliti sem henni ber að sinna, m.a. vegna skorts á úrræðum og viðurlögum.“
Hér þarf að kalla eftir því hver viðurlögin eru, hversu oft þeim er beitt og hve langur tími líður frá því að brot á sér stað, þ.e. að rannsaka og úrskurða. Auk þess telur stofnunin að endurskoða þurfi ákvæði laga um stjórn fiskveiða um hámarksaflahlutdeild. Í hvaða átt á að endurskoða? Á að breyta reglum um aflahlutdeild til hækkunar eða lækkunar, eða er það grundvallaratriði? Annað leiðir til samþjöppunar, hitt ekki.
Mig langar einnig til að minnast á þann hluta er fjallar um viðbrögð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og Fiskistofu. Þar segir, með leyfi forseta:
„Um eftirlit með brottkasti tekur ráðuneytið undir mikilvægi þess að koma í veg fyrir brottkast. Eftirlit með slíku sé þó erfitt í framkvæmd.“
Hér mun tækni nútímans hjálpa okkur og við eigum að sjálfsögðu að vera opin fyrir því sem hún býður upp á. Ýmiss konar búnaður sem gæti gagnast er alltaf að verða ódýrari og fiskiskip nútímans eru yfirleitt vel tæknivædd og vel tengd við umhverfið. Það sem Fiskistofa hefur m.a. að segja um málið er þetta, með leyfi forseta:
„Stofnunin mælir jafnframt með því að færa vigtun á hafnarvog undir forræði stofnunarinnar.
Fiskistofa vekur athygli á að samstarfsyfirlýsing Fiskistofu og Hafnasambands Íslands um framkvæmd vigtunar og eftirlits líði fyrir takmarkað eftirlit. Aukinn mannafla þurfi auk endurskoðunar forsendna og fyrirkomulags heima- og endurvigtunar.“
Þetta er afar mikilvægt. Öllum þarf að vera ljóst hvernig heimavigtunarleyfi eru gefin út. Hefur Fiskistofa eitthvað um þau að segja í dag? Það er spurning.
Í umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir m.a., með leyfi forseta:
„Lög og reglur þurfa að taka á brotum og hafa í senn fælingarmátt og varnaðaráhrif.“
Ég sakna þess í áliti nefndarinnar að ekki komi fram tillögur um hvata. Hér á ég við að í kerfinu sé hvati sem hvetji menn til að koma með allan afla að landi. Eins og staðan er í dag er smáfiskur lítils virði og dekkar varla kvótakaup þrátt fyrir að undirmál teljist aðeins 50% af kvóta. Þarna er ég aftur að hugsa um þennan VS-afla.
Ég vil einnig vitna í þann hluta sem fjallar um eftirlit með framkvæmd laga. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Nefndin ræddi einnig viðurlög við brotum gegn lögum um stjórn fiskveiða og lögum um umgengni um nytjastofna sjávar. Að mati nefndarinnar þarf að herða viðurlögin þannig að þau hafi í senn fælingarmátt og varnaðaráhrif.“
Hér hef ég áhyggjur af því að skipstjórnarmenn og sjómenn verði gerðir að blórabögglum, en þeir eru oft undir miklum þrýstingi frá útgerðarmönnum. Hér á ég við að ætlast er til að afli sem komið er með að landi sé sem verðmætastur. Þá er brottkast vandamál. Þarna mætti áfram ræða um hvata til að koma með allan afla að landi og hvet ég alla aðila máls til að vinna að því svo að þessi umræða um brottkast, bæði meint brottkast og upplýst brottkast, geti orðið sem minnst.