framlög í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Þær athugasemdir sem ég hef haft við málflutning sveitarfélagastigsins að undanförnu eru um að menn eru komnir langt fram úr sér í þeirri umræðu. Á undanförnum árum höfum við gert skriflegt samkomulag sem tengist framlagningu fjármálaáætlunar á milli ríkisins og sveitarfélaganna um hin ýmsu fjárhagslegu málefni. Ekki hefur tekist að klára þetta skriflega samkomulag í ár. Það er ekki nógu gott en við getum alveg lifað með því. Við gerð fjármálaáætlunar, sem rædd verður í næstu viku, þurfum við að gefa okkur ákveðnar undirliggjandi forsendur. Meðal þeirra forsendna sem við höfum tjáð sveitarfélögunum er sú að við myndum í aðgerðapakka okkar ná samkomulagi við sveitarfélögin sem næmi því að við myndum ekki lækka jöfnunarsjóðsframlagið heldur halda því í fastri krónutölu á næstu árum.
Á endanum er það auðvitað háð því að samkomulag náist við sveitarfélögin um þessa þætti. Fjármálaáætlunin ræður ekki svona málum til úrslita heldur þyrfti að koma fram sérstakt frumvarp. Í samtali við sveitarfélögin er fjölmargt rætt. Það er rétt sem hv. þingmaður bendir á, þar koma t.d. málefni fatlaðra við sögu. Þar höfum við t.d. verið að ræða lífeyrissjóðamál, en ég ætla að leyfa mér að rifja upp í því sambandi að ríkið kom til sveitarfélaganna fyrir nokkrum árum og afhenti litla 20 milljarða óumbeðið og án nokkurrar skyldu inn á lífeyrisskuldbindingar sveitarfélaganna. Við létum þess getið í því tilfelli að kannski mætti líta til þess að við hefðum afhent 20 milljarða í framtíðarfjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Því var svo sem ágætlega tekið.
Niðurstaðan er sem sagt sú að það er algerlega ótímabært að vera með stórar yfirlýsingar um hvað gerist með jöfnunarsjóðsframlagið. Við heyrum andmæli sveitarstjórnarstigsins við því að eitthvað verði hróflað við því gjaldi, en þá höldum við bara áfram niður listann vegna þess að hann er býsna langur. Á honum er gistináttagjald og ýmislegt annað.