framlög í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni, það er áhyggjuefni fyrir sum sveitarfélög að brestur verði á loðnuvertíð í ár. Við lásum t.d. um það í blöðunum í morgun að Vestmannaeyjabær sér á bak miklum tekjum vegna þess sem ella hefðu skilað sér en telur sig nú geta lifað með því. Jöfnunarsjóðurinn hefur einmitt þann eiginleika að hann tekur m.a. tillit til svona breyttra forsendna. Útdeiling úr jöfnunarsjóðnum tekur tillit til tekna sveitarfélaganna þannig að staða þeirra innbyrðis breytist gagnvart tilkalli úr jöfnunarsjóði eftir því hvernig árar hjá einstökum sveitarfélögum.
Ég sé ekki fram á að ríkið komi með sérstakt tillag til sveitarfélaganna vegna loðnubrests en ég legg áherslu á að það eru fjölmörg atriði í fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga sem þarf að ræða og algerlega fráleitt að sveitarfélögin láti skína í þá hugmynd (Forseti hringir.) að ganga upp frá því samtali, heildarsamkomulagi um fjárhagsleg málefni, af því tilefni að við höfum rætt um jöfnunarsjóðsgjaldið á fundum í fjármálaráðuneytinu.