forsendur fjármálaáætlunar.
Herra forseti. Ég býst við því að fjármálaráðherra landsins átti sig á því að föst krónutala þýðir raunlækkun, ekki síst í verðbólguþjóðfélagi, og bítur harðar nú þegar hún er að aukast. Og ef hæstv. ráðherra vill fara niður listann í samstarfi við sveitarfélög þá er kannski allt í lagi að bera líka niður í vanfjármögnun á öldrunarþjónustu.
Síðasta fjármálaáætlun var gagnrýnd harðlega af fjölmörgum hagsmunaaðilum sem töldu að forsendurnar myndu ekki standast og markmiðum um stöðugleika yrði ekki náð. Forsendurnar byggðust á 13 ára samfelldu hagvaxtarskeiði, krónan yrði stöðug í fimm ár og þá var gert ráð fyrir talsvert mikilli ró á vinnumarkaði. Finnst hæstv. ráðherra eitthvað af þessu hafa gengið eftir? Þingmenn Samfylkingarinnar m.a. gagnrýndu þetta og bentu á að niðurskurðarhnífurinn yrði býsna fljótur á loft við slíkar aðstæður ef forsendur brygðust.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 talaði hæstv. fjármálaráðherra um 5 milljarða aðhaldskröfu á stofnanir og ráðuneyti og það bætist ofan á þessa rúma 3 milljarða sem eiga að koma til skerðingar á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sem er, eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði, sérstaklega hugsaður til að fjármagna þjónustu við fatlað fólk og aðra mikilvæga nærþjónustu.
Fjármálaráð varaði á sínum tíma við fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar sem fjármálaáætlun byggir á og að stjórnvöld gætu lent í spennitreyju. Hagfræðingar hafa gagnrýnt lögfesta fjármálareglu harðlega og sagt hana fráleita, vanhugsaða og tæplega samræmast sveiflujöfnunarhlutverki ríkisins, gæti minnkað eftirspurn á tímum samdráttar og dýpkað niðursveifluna.
Hæstv. fjármálaráðherra: Erum við ekki einmitt að festast í spennitreyju fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar? Væri ekki skynsamlegra að afla tekna og verja velferðina í stað þess að þrengja sífellt að sveitarfélögunum og skerða þjónustu? (Forseti hringir.) Myndi það ekki skapa meiri stöðugleika?